Var í ADHD greiningu. Sáli spurði hvort ég gríp stundum fram í með svari áður en spyrjandi nær að klára spurninguna. Ég svaraði "já" áður en hún náði að klára spurninguna.
Það er verið að laga vatnslögn úti þannig að það er ekkert kalt vatn á húsinu í dag milli 11-16. Ég veit þetta, þess vegna dettur mér reglulega í hug að:
💧Fara í sturtu
💧Baða hundinn
💧Setja í þvott
💧Vaska upp (því ég veit að ég get ekki notað uppþvottavélina vatslausa)
Kvöldrútínan mín:
🌛Taka af mér makeup
🌛Bursta tennur
🌛Gleyma að ég gerði skref nr. 2 og borða súkkulaðirúsínur
🌛Bursta tennur
🌛Reyna rosalega mikið að fá mér ekki aftur súkkulaðirúsínur
🌛Mistakast
🌛Bursta tennur
Ég fékk óvæntan reikning og var mjög leið því ég á ekki mikinn pening. Þegar ég sá hann var mín fyrsta hugsun að kaupa kjólinn sem mig langar í til að kæta mig. Ég er ekki svaka góð í fjármálum
Nota stundum ChatGPT í vinnunni og reglulega hrósa því og þakka því fyrir þegar það skrifar eitthvað fyrir mig. Ég vona að það muni eftir þessum góðverkum mínum þegar SkyNet tekur yfir
Ég vann pub quiz í gær. Vann greinilega svo hart að einhver lúði fór á barinn og kvartaði því hann hélt að við hefðum svindlað 🤣
Sorry, dude. Ekkert svindl, ég er bara svona fokking klár 😎🤓
Íslendingar þurfa að taka upp eitthvað eins og Thanksgiving. Við þurfum einhvern buffer á milli hrekkjavöku og jóla. Það er 8. nóv og Laugavegs bjöllurnar eru komnar upp og búðir eru byrjaðar að spila jólalög. Þetta getur ekki verið hollt.
Þetta er Alf. Alf er ekkert hræddur við jarðskjálfta. Finnst bara pirrandi þegar þeir vekja hann. Alf var hins vegar skíthræddur við plastpoka sem við sáum úti. Alf er flókinn einstaklingur
Sjáið þennan lúða! Hann er of lítill til að hoppa upp í sófa þegar ég er að reyna að chilla þannig að hann vælir þar til ég tek hann upp. En ef ég er að borða e-ð í sófanum þá allt í einu er hann nógu stór til að stökkva upp. Svo horfir hann á mig svona, svo ánægður með sig. Lúði
Hundurinn minn geltir sjaldan en þegar hann gerir það þá er það:
- Í svefni
- Því hann er uppi í sófa, missti beinið sitt á gólfið og nennir ekki að sækja það sjálfur
- Hann sá stóra sturtusápubrúsann sem hann hatar
Og núna þegar við spilum þetta er ég alltaf kosin þó ég passa mig á að segja alltaf "please" og "thank you" í hvert sinn sem ég opna munninn. Bara því "Íslendingar segja ekki please".
Persónulega finnst mér allra dónalegast að kjósa mig ár eftir ár 😤😜
Einhverjum heimsóknum seinna spiluðum við þetta spil aftur og sama spurning kom. Ég bjóst við að við myndum sleppa henni en nei. Hver var kosinn dónalegastur? ÉG! Þau sögðu því þetta væri því Íslendingar nota ekki orðið "please" ...