Held ég segi bless við þennan samskiptamiðil. Hafði reyndar gaman hérna fyrir nokkrum árum en ... Hvaða samskiptamiðill hentar manni eins og mér sem er stundum með smá táningarþörf og hefur áhuga á einföldum húmor og sálfræði? Kannski enginn?
Að skipta út sætum, litlum fugli fyrir X minnir mig á tímabilið í kringum árið 2000 þegar fólki fannst töff að skíra fyrirtæki x eða .com eða .is. Konan mín vann þá á hárgreiðslustofunni HárX og ég var með grín heimasíðuna https://t.co/NR5zgxDovs.
Alltaf liðið frekar illa í góðu veðri. Hélt lengi vel að það væri vegna þess að það væru svo miklar væntingar um hamingju í sól en skýringin er trúlega frekar sú að ég hef alltaf verið með grasofnæmi. Takk rigning og él.
Leitt að heyra að það verði tafir á strætóferðum. Maður getur samt ekki annað en tekið ofan fyrir því hvað þessir þjóðarleiðtogar eru alþýðlegir að notast við almenningssamgöngur.