Í gær rassasendi ég 13 skilaboð. Td. á einhvern sem ég var með á námskeiði 2011, trommara úr Lúðrasveit Stykkishólms 1996, eitthvað mjög skrítið hópspjall sem ég skil ekki og fleira í þessum dúr. Ekki öll sem fengu skilaboð eru lifandi! En skilaboðin voru linkur á þetta:
Örnefni dagsins. Sóldeygjardalsöxl hin hærri. Einnig kölluð Sóldýjadalsöxl-hærri. Svo er Sóldeyjalækur á svipuðum slóðum, sem kunnugir munu hafa kallað Sóleyjalæk. Jájá
Örnefni dagsins er Skjálgarlækur í landi Skjálgar í Kolbeinsstaðahreppi. Skjálg og Kolbeinsstaðir eiga beitiland óskipt, en slægjuland skipt, og tilheyra Skjálg, slægjur á öllum Skjálgarlæk. Skjálg skjálg skjálg skjálg skjálg skjálg - hvílíkt orð!
Nei ,Jón Gunnarsson, Katrín Jakobs og hinir aumingjarnir, ég er ekki vonsvikin heldur reið! Eiginlega brjáluð.
Hvernig þessi skítseyði fara að því að bursta í sér tennurnar fyrir framan spegil og með ljósin kveikt er mér hulin ráðgáta.
Farið þið í fúlan pytt!!