Björg Ágústsdóttir, bæjarstjóri Grundarfjarðarbæjar, heldur síðasta erindið í dag. Hvað geta sveitarfélögin gert? Forvarnarstarf sveitarfélaga í eigin starfsemi sem og hvatning út í samfélagið. #Forvarnir2022
Aðalskipulag segir til um hvað gerist í rýminu milli húsanna. Orðið örugg eða öryggi kemur 59 sinnum fyrir í skipulaginu. Öryggi í umferðinni, gangandi og hjólandi. #forvarnir2022
Geta rafrænar lausnir fækkað slysum og aukið öryggi sjómanna? Þessu ætlar Jón Pétursson, rannsóknarstjóri sjósviðs hjá Rannsóknarnefnd samgönguslysa, að svara. #forvarnir2022
Ein af áskorunum eru hversu seint atvik eru send inn og bendir á að með ATVIK atvikaskráningarkerfinu er hægt að gera mun betur. ATVIK var þróað og hannað af VÍS en gefið Rannsóknarnefnd samgöngslysa á Sjómannadaginn í fyrra. #forvarnir2022
Ragnar sýndi okkur öryggismyndband fyrir starfsfólk þar sem brýnt er fyrir fólki að deila ekki lykilorðum með öðrum. Bráðfyndið myndband þar sem lykilorð er líkt við tannbursta. Þú myndir ekki lána öðrum tannburstann þinn?
Lausn: gott skipulag á vinnuumhverfi, hver hlutur á sinn stað. Reglur um móttöku gesta, s.s. litakóðakerfi á sýnileikavestum. Árekstrarvarnir. #forvarnir2022
Hvaða áskoranir eru?
- Mannlegi þátturinn - fjölþjóðlegur vinnustaður og því mikil lagt í samskipti og upplýsingamiðlun.
- Aðlögun að nýju vinnuumhverfi. Þarf að kynna það vel.
- Breytingar á vinnulagi og ferlum.
- Nýr búnaður, vinna í kringum vélar. #forvarnir2022