Leik lokið hér í Hamingjunni með 1-0 sigri okkar Víkinga! Markið okkar skoraði Nikolaj Hansen með skalla og af gríðarlegu harðfylgi. Talandi um harðfylgi. HARÐASTA STÚKA Í HEIMI. TAKK! VÁ! Næst er það útleikurinn hjá strákunum og hann verður í beinni útsendingu hjá Livey. 🖤❤️
Næstu leikir hjá meistaraflokkum Víkings. Strákarnir fara til Akureyrar á föstudag og helgina eftir það kemur Stjarnan tvisvar í heimsókn. Fyrst til strákanna fimmtudaginn 23.apríl og svo hefst Besta deild kvenna loksins 24.apríl þegar jú, Stjarnan kemur í heimsókn! Veisla!
Kæru Víkingar. Það er uppselt á leik Víkings og Breiðabliks í kvöld í Hamingjunni. Mætum snemma, við opnum dyrnar kl. 18:15 og hlökkum til að sjá ykkur. ❤️🖤
Hún er mætt til landsins. Kæru Víkingar, þið getið sótt pantanir á skrifstofutíma í Víkinni á morgun 7.apríl. Veislan er að byrja! ❤️🖤
Ef þú ert ekki búin/nn að panta þá er hægt að henda inn pöntun hér : https://t.co/IKW0yY1Dzy