Biiiiiingó!!!
Gleðilegan gluggadag!!
Hrannar Björn er mættur á láni frà KA heim í Völsung!!!106 leikir og 29 mörk í grænu treyjunni fyrir meistaraflokk Völsungs takk fyrir!!!!
Einnig á láni frá KA kemur Áki Sölvason, 23 ára gamall framherji.
Áfram Völsungur
#allirígallana
ÞAÐ ERU FJÓRIR TÍMAR Í ÞETTA
Lokaumferð 2.deildar karla kl.14.00 í dag og við spilum í Njarðvík. Okkar piltar ætla að klára sitt og svo sjáum við hvernig kapallinn gengur upp. Það er mikið í húfi!!
Endilega takið laugardagsrúnt til þess að styðja okkar menn!
ÁFRAM VÖLSUNGUR!!!!
Minnum enn og aftur á leikinn á morgunn!!!!!
Það er hörku barátta framundan og því hvetjum við stuðningsmenn og aðra til að fjölmenna í brekkuna til að sigla þessu í höfn með strákunum!! Minnum á upphitun stuðningsmanna á Húsavík Öl frá klukkan 12:00! 🍻
Áfram Völsungur!!!
Risaleikur á laugardaginn þegar @KVfotbolti koma í heimsókn.
Barist verður til síðasta blóðdropa enda gríðalega mikið í húfi fyrir bæði lið!!!!
Upphitun hefst kl 12 á Húsavík Öl og hvetjum við fólk til að fjölmenna þangað til að væta kverkana áður en fjörið sjálft hefst
Risaleikur á Ólafsfirði í kvöld!!!!
Hvetjum alla okkar stuðningsmenn á völlinn og náum í þessa þrjá risa punkta. Einungis 2 stig munar á liðinum þannig það má búast við hörkuleik!!!!
Allir í gallana og stigin heim!
#allirígallana
MÆRUDAGSLEIKURINN 2021!!!!!
Það verður alvöru veisla á Vodafonevellinum þegar Fjarðabyggð mætir!!
Sjóvá, Geosea, Fish&Chips og Fiskbúð Húsavíkur bjóða öllum frítt inn á völlinn og sala verður á hamborgurum og meððí í sjoppunni. Allir á völlinn!
UPP MEÐ SOKKANA OG ÁFRAM GRÆNIR!!
Bikarleikur við Val
Stelpurnar munu fá stórlið Vals á Vodafonevöllinn á morgunn í Mjólkurbikarnum!
1000 kr inn á völlinn og Borgarar í sjoppunni, kvöldmatnum reddað!!
Hvetjum alla Völsunga á völlinn og styðjum okkar stúlkur áfram.
Allir í gallana og áfram Völsungur
HEIMALEIKUR!
Hörku fössari framundan! Meistaraflokkur karla tekur á móti liði KF sem situr á toppi deildarinnar föstudaginn 28. maí. Viðureignin fer fram á Vodafonevellinum á Húsavík og hefst kl. 19:15 og streymt verður frá leiknum á Youtuberás félagsins.
Áfram Völsungur
Meistaraflokkur kvenna sækir Hamrana heim í Mjólkurbikarnum mánudaginn 17. maí. Leikurinn hefst kl. 19:15 í Boganum. Því er tilvalið að lífga upp á mánudaginn og gera sér ferð í Bogann og hvetja stelpurnar okkar áfram til sigurs!
ALLIR Í GALLANA OG ÁFRAM VÖLSUNGUR!
ÞANNIG FÓR UM SJÓFERÐ ÞÁ!
2.umferð 2.deildar karla fór fram í dag og fyrsti heimaleikur hjá okkar mönnum. Hart var barist allt til enda en við þurftum að lúta lægra haldi. 1-2 tap staðreynd þar sem Sæþór okkar minnkaði muninn þegar tíu mínútur lifðu leiks.
ÁFRAM VÖLSUNGUR!!!