Jæja er einhver hérna? Má ég vera með á þessu nýja forriti? Á einhver boðskort? Líður eins og ég sé að betla boð í eitthvað VIP partí en ég er reyndar stórskemmtileg svo þið mynduð alveg græða á þessu 😇
Ég skulda þessum þáttum alla mína norsku - og ég er SKUGGALEGA góð í norsku. Það eru til Norðmenn sem halda því fram að ég sé bara pía frá Bærum og hafi bara verið að cosplaya Íslending í Osló upp á djókið.
Ég er að hlusta á SKAM playlistann á Spotify og ég skammast mín ekki einu sinni. Þess þá heldur, er ég að opinbera það hér. Kem til dyranna eins og ég er klædd - smart en alltaf svona fimm árum of sein.
@VilhelmNeto Ég var í meistaranámi með þessari týpu - núna er hann aðeins þunnhærðari og eldri, ráðgjafi hjá McKinsey, gengur eingöngu í Patagonia, allur í súrdeigsgerð og hjólreiðum. Gaslightar líka kærustuna sína reglulega.
@HeklaElisabet Þetta tíst sat svo í mér að í nótt dreymdi mig að Bey hefði tekið yfir heiminn á mjög ofbeldisfullan hátt og hótaði kjarnorkustyrjöld við minnsta mótlæti.
Allt lúkkið var samt mjög smart - hún má eiga það blessunin.
Á sjálfan þjóðhátíðardag Svíþjóðar var rétt í þessu verið að líkja mér við krónprinsessuna þeirra. Með okkur eru nákvæmlega engin útlitsleg líkindi en ég samþykki þetta samt.
Svona væru svo konunglegu candid myndirnar mínar - drottning fólksins og allt það 👑🇸🇪
Óbærilegur léttleiki knattspyrnunnar hefur fengið standandi lófaklapp á hverri sýningu og allir elska þetta verk líka fólk sem hatar fótbolta! Aðeins nokkrar sýningar eftir 🫡 https://t.co/UDcydhc0ff 🔥
@gunny_birna Samviskubitið gagnvart eldra barninu var ömurlegt. Ég fæ líka alltaf hræðilegar martraðir fyrstu dagana eftir fæðingu. Finnst eins einhver sé að reyna taka barnið frá mér. Ah hormónin, hversu grillað dæmi!
@gunny_birna Ég gafst upp á öllu svona brasi, klæddi mig upp og málaði mig fínt og dró fjölskylduna í bröns. Dóttir mín fæddist svo fljótlega eftir hádegi - hún ætlar greinilega ALDREI aftur að missa af bröns 😅🍳🥓🧁