Það er hálf kómískt að ríkisstjórnin réttlæti fjárframlög í stríðsrekstur annarra þjóða með því að upphæðirnar séu svo litlar, á meðan björgunaraðilar hér heima þurfa að vinna hetjudáðir við ófullnægjandi tækjakost.
Ef fjárhæðirnar eru svona óverulegar, hvers vegna virðist þá svona erfitt að tryggja nauðsynlegan búnað hér heima?
Við virðumst hafa gleymt grundvallaratriði: ríkissjóður er fjármagnaður af mér og þér. Þeir sem r��ðstafa honum skulda okkur svör um forgangsröðunina.
Ríkið á að þjóna fólkinu sem myndar það. Valdið sem stjórnmálamenn fara með er fengið að láni frá okkur. Það er ekki þeirra eign.
Við eigum ekki að þurfa að biðjast afsökunar á reiði þegar okkur finnst farið illa með það umboð. Traust fæst ekki með því að segja fólki að róa sig. Það fæst með því að axla ábyrgð.
Samfélög hreyfast í reiði!
Say what you will about 2026. By every measure that matters to me, it’s been my best year yet.
There’s madness in the world. There’s still plenty worth celebrating.