Var á fyrstu vaktinni minni á veitingastað hérna í DK
Kúnni (stelpa): du er meget lækker
Ég mjög hissa og sagði “jamen tak og i lige måde”
Kúnnin: altså maden var lækker, ikke dig
Yfirmaðurinn var vitni af þessu í kaupbæti, held eg mæti ekkert aftur
Olaf palme var drepinn 28. febrúar og maðurinn sem var grunaður hét Victor Gunnarsson, pabbi minn er fæddur 28. febrúar og heitir Victor Gunnarsson, “skemmtileg” tilviljun 😅
Ég í góðum gír ákvað að setja á mottumars auglýsinguna í gang svo krakkarnir í leikskólanum gætu dansað við súperman lagið, áttaði mig svo ekki á því að lagið væri öðruvísi fyrr en krakkarnir fóru að klóra sér í pungnum :’)
Að vera maki Dana þýðir að þú þarft að sætta þig við
a) dönsku
b) danskt raunveruleika sjónvarp
c) viðbjóðslega langar (6-12 klst) veislur þar sem þú situr fastur í sama stólnum og þykist borða síld
d) hópsöngur í þessum veislum
Allt er þetta óásættanlegt en svona er ástin