„Hvað er að ykkur?“ spyr @Lenyarun er hún gerir grein fyrir atkvæði sínu gegn því að stjórnvöld geti svipt hælisleitendur fæði, húsnæði og heilbrigðisþjónustu. Tillögu sem var samþykkt.
Nú standa yfir atkvæðagreiðslur um útlendingafrumvarpið og þingmenn Pírata hafa varla undan að svara og leiðrétta rangfærslur stjórnarliða og ráðherra, sem flestir hafa verið fullkomlega fjarverandi í umræðum um þetta mál undanfarnar vikur og mánuði.
Hér sjáum við ráðherra í ríkisstjórn Íslands keppast við að komast sem fyrst út úr þingsal svo þau þurfi ekki að heyra minnst á fylgdarlaus börn á flótta og mannréttindin sem þau vilja svipta þau með útlendingafrumvarpinu.
Er þetta þín ríkisstjórn?
XD í meirihluta: innviðir molna og hætta að virka, Landhelgisgæslan þarf að selja þyrluna sína til að standa undir sér, Lögreglan fær heimild til að stuða fólk með rafbyssu. Eru allir sem kjósa XD bara sjúklega sáttir eða er þetta fólk bara fast í einhverri búbblu í Garðabænum?
Sjálfstæðisflokkurinn er þjóðernissinnaður fasistaflokkur. Sigmundur Davíð er þjóðernissinni. Köllum hlutina sínum réttu nöfnum, verndum kennara sem segja satt og berjumst gegn snjókornum sem elska að þykjast vera fórnarlömbum og afbaka raunveruleikann.
Áhugavert að hægrinu virðist ekkert sérstaklega brugðið yfir því að það hefði auðveldlega verið hægt að fá TVEIMUR KOMMA TUTTUGU OG FIMM MILLJÖRÐUM (2.250.000.000 kr.) meira fyrir bankasöluna. Það eru peningar í ríkið. Peningar fyrir okkur. Hvers vegna heyrist lítið í því fólki?
Við tókum símana af þeim.
Til að vernda þau.
Við slökktum á búkmyndavélunum okkar.
Til að vernda þau.
Við trufluðum störf fréttafólks.
Til að vernda þau.
Fluttum þau á götuna í Grikklandi.
Til að vernda þau.
Bjarni þakkar Jóni Gunnarssyni sérstaklega fyrir það hvernig hann hefur rekið fólk á flótta undan stríði úr landi. Lætur landsfundargesti klappa fyrir honum. Héðan í frá eru öll þau sem styðja áfram Sjálfstæðisflokkinn eða ríkisstjórnina samsek í mannréttindabrotum þeirra.