@roslinv Spara, spara,spara... matseðill vikunnar ræðst af hvað er á síðasta séns í Kónunni eða Nettó. Húsnæðislánaafborgunin er búin að hækka svakalega 🫠
Finnst sturlað að ég hafi ekki sofið meira en 4 tíma samfleytt í 7 mánuði. Og ekki meira en 2 tíma samfleytt síðustu veikindaviku. Og svo á ég bara að mæta í vinnuna á morgun og hafa hausinn í lagi fyrir það???
Kv. Móðir á barmi sturlunar um miðja nótt sem getur ekki sofnað 😭
.. í fæðingarorlofi án þess að verða fyrir verulegri tekjuskerðingu með því að taka 50% fæðingarorlof og dreifa því? Hefði ekki geta lifað á því, er nú þegar komin í bullandi mínus með þessarri tekjuskerðingu sem var síðustu 6 mánuði.
Byrjaði aftur í vinnunni eftir fæðingarorlof á miðvikudaginn, er grasekkja og var búin að koma barninu í pössun hjá frænkum sínum. Barnið er veikt en ég mæti samt með það í pössun því mér finnst svo mikilvægt að mæta í vinnuna og standa mig þar. Geri ekkert í vinnunni nema..
.. koma mér inn í tölvukerfið, pumpa mig og sakna barnsins. Er svo heima með veikt barn í gær og í dag. Langar ekkert aftur í vinnuna, bara vera heima að knúsa veika barnið mitt. Veit ekki hvert ég er að fara með þetta annað en afhverju má ég ekki bara vera í heilt ár heima...
Yngsta barnið 5 mánaða og mamman fær sé í glas.
1,5 rauðvínsflösku og 2 bjórar á kojufylleríi...
...þetta var akkúrat spennulosunin sem mig vantaði en vissi ekki að mig vantaði 😭👌
P s. Barnið er í góðu yfirlæti með föður sínum og pelamjólk úr frystinum 😉
Var að horfa á #fullveldiVHS með pabba sem að fussaði og sveiaði yfir þessu, "hvaða rugl er nú þetta?". Mamma spyr afhverju hann sé þá að horfa á þetta? "Nú, til þess að getað talað um hversu mikið bull þetta sé!"
Sá hann samt brosa út í annað yfir sumum atriðunum 😄
@SteinunnVigdis Eitt egg í krukku, 1 dl olía, smá salt, smá sítrónusafi, töfrasprota á botninn og blanda. Ekki hreyfa töfrasprotann af botninum fyrr en næstum öll blandan er orðin hvít og þá má blanda allt vel saman. Bætið síðan chilli eða hvítlauk eftirá til að gera chilli mæjó eða alioli 👌
Auðvitað, auðvitað bilar þvottavélin mín í fæðingarorlofi, korter í jól og með taubleyjubarn 😩 þarf að biðja um þvottavél í fyrirfram jólagjöf eða er hægt að karolinafunda nýja þvottavél fyrir mig 😅