En réttindabarátta samkynhneigðra var ekki tískubylgja. Hún var ekki merki um hnignun samfélagsins eða afturför góðra gilda. Afstaða kirkjunnar fældi marga frá henni og ekki aðeins hinsegin fólk heldur einnig fjölskyldur & vini sem ekki skildu orðræðu forsvarsmanna kirkjunnar.
„Ég sé engin rök fyrir því að íslensk stjórnvöld haldi óbreyttu fyrirkomulagi á leigubílamarkaði. Óbreytt ástand felur í sér einokun, stöðnun og skort á nýsköpun sem kemur helst niður á neytendum, en líka á bílstjórunum sjálfum“ @aslaugarna í umr. um frelsi á leigubílamarkaði.
@arnarorn “Ég kæri mig ekki um að samkynhneigð sé kennsluefni hjá börnunum mínum” Jam því það er svo rangt að fræða börn um alls konar ást? :) djöfull getur fólk verið þröngsýnt
Ég veit að það á ekki að pirra mig en þegar orðið „lífsstíll” kemur fyrir í umræðunni um samkynhneigð, það pirrar mig alltaf hrikalega mikið. Það velur sér enginn hverjum hann verður hrifinn af. Við fæðumst svona.
Það fyrsta sem kom upp í hugann á mér var að svona ummæli eru einmitt ástæða þess að margir eiga erfitt með að sætta sig við að vera það sem þeir eru, þrátt fyrir að þessi hópur fólks sé fámennur, þá heyrist hátt í honum. https://t.co/iaMm2uTeeH
Það blasir við að bann við sænsku snusi og einkasala ríkisins á öllu áfengi hefur hvorttveggja haft vond áhrif á lýðheilsu þjóðarinnar - þótt rökin fyrir þessu séu einmitt lýðheilsuleg. Þessi ríkisstjórn segist vilja bæta lýðheilsu, en mun ekki snerta þessi mál spái ég.