Kiljan fór á bókamarkaðinn og Sunna Dís valdi sér Skurn eftir @arndisloa
„Ég var svo hrifin af Taugaboðum á háspennulínu,“ sagði hún. Og Egill Helga bætti við: „Svo sérstök rödd og athyglisverð.“
@Angurvaki @selmaa_dis Já, þarna sér maður einmitt svart á hvítu hvað ákveðin orð eru fljót að úreldast, sérstaklega í tengslum við minnihlutahópa. Virk ritstjórn er eiginlega nauðsynleg.
@VillaH73 Einmitt, þegar maður skrollar aðeins niður kemur flettan "argur" og orðið samkynhneigður undir því. En engu að síður algjörlega absúrd tenging. Snöru þarf nauðsynlega að uppfæra.
@unautgafuhus Það er í raun ótrúlegt hve fá verk eftir minnihlutahópa hafa hlutfallslega komið út á Íslandi. Til að mynda byrjar úrgáfa á bókum höfunda af erlendum uppruna ekki almennilega fyrr en árið 2022!
Hér má sjá þrjú verk @unautgafuhus sem eru öll skrifuð af höfundum í mismunandi jaðarhópum og fjalla á sinn hátt um það að tilheyra hverjum minnihlutahópi.
Skurn eftir Arndísi Lóu Magnúsdóttur fær ⭐️⭐️⭐️⭐️ og hálfa ✨ í Morgunblaðinu!
„Hér er engu orði ofaukið og ekkert vantar upp á; tónninn er hárfínn, myndmálið fíngert en þó áhrifamikið og frásögnin einstaklega frumleg og sönn og hreyfir við einhverju djúpt innra með lesandanum.“
Afmælisbarn dagsins er @arndisloa sem var að senda frá sér eina bók, SKURN, með þremur kápum 🥳
Skurn er fíngerð ljóðsaga um aðskilnað og áföll, styrk og viðkvæmni, og eftir stendur spurningin hvort hægt sé að skilja sársauka annarra.
Kápur eftir @bergthorajons