Við feðgar erum að sigla í orlof, mitt helsta markmið er að við getum deilt tónlisarsmekk. Pabbi fílar rapp og Uni tryllist við Glaðasta hundinn.
Tillögur velkomnar að playlista fyrir komandi mánuði.
X er frekar þrotað, mögulega þarf ég að mjúta betur. Blue sky er ekki orðið nógu skemmtilegt.
Tiktok er síðan eitthvað sem ég hefði aldrei átt að sækja og facebook er að verða meira og minna eingöngu vinnutengt.
Hvar er skemmtilegast að sóna út þessa dagana?
Staðan á mér?
Var böstaður af ömmu á sundlaugarbakkanum sem sá að vel flúraði pabbinn sem kom of seint var á nærbuxum en ekki sundskýlu sem gleymdust. Fórum svo flakk feðgar og pabbi gaf frekum strætóbílstjóra puttann á leiðinni heim seinni partinn.
Annars bara góður.
Tillögur óskast!
Nú fagna ég þeim merka áfanga að verða 39 ára á morgun. Ég ætla að sjálfsögðu að gefa mér afmælisgjöf en mér dettur ekkert í hug.
Máttur samfélagsmiðla og allt það.
Ferilskrá Ásdísar Ránar er rosaleg:
'Ásdísi þekkja flestir Íslendingar en hefur hún starfað sem fyrirsæta í fjölda mörg ár. Þá er hún einnig einkaþjálfari, þyrluflugmaður, umboðsmaður, rithöfundur, listamaður og fatahönnuður.'