Mér fannst alltaf jafnáhugavert hvernig þjóð eins og við sem tökum persónuvernd mjög alvarlega, látum okkur hafa það að samþykkja vafrakökur og persónuverndarstefnur, blörrum andlit fólks á myndum, vorkennum innbrotsþjófum fyrir að vera að lenda á upptöku í eftirlitsmyndarvélum og blótum algóryþmanum fyrir að vera stöðugt að ota einhverjum varningi að okkur, umbreytumst allt í einu í nokkra daga í ágúst á hverju ári og veggfóðrum internetið með upplýsingum um tekjur næsta manns eins og ekkert sé sjálfsagðara.
Ok er eitthvað meira óþolandi en bílstjórinn sem er fremstur í röð á ljósi, fastur í skjánum og sér ekki að það er komið grænt, þarf bara aðeins að klára að læka eitt og setja eitt komment og svo kannski bara aðeins að tékka á mbl og klikka á eina frétt og svo rankar hann við sér, lufsast af stað akkúrat þegar gula ljósið er að koma og skilur svo alla röðina eftir á rauðu ljósi áfram? (Þetta tvít er mögulega skrifað bíðandi í röð á rauðu ljósi…)
@petur_maack Þurfti kannski ekki mikið til, hann fíraði kannski upp í rettu og það bara misstu sig allir, ekki séð annan eins flippkisa, töluðu um það árum saman
Eitt sem er svo gott fyrir íþróttir er þegar aðalkeppinautarnir eru ólíkir karakterar, það gerir aðdáendunum svo auðvelt að tengja. Rory vs. Bryson er þannig einvígi fyrir golfið. Þeir virka eins og sitthvor týpan, Rory er fjármálastjóratýpa, sem stundar útihlaup, fylgist vel með svefninum í úrinu og skilar skattframtalinu fyrripart janúar á meðan Bryson er tech-bro á carnivore-mataræði með vel dreift rafmyntasafn. Rory er vítamín og langtímasamband, Bryson er mækródós og góð helgi í bústað.
@JonJKarlsson Það væri heiður. Rétt þó að taka fram að í samráði við þjálfarateymi mitt hefur verið tekin ákvörðun um að veita engin viðtöl fyrr en að loknu meistaramótinu í sumar.
Í viðtali við Rúv segir Ásthildur Lóa að aðstoðarmaður forsætisráðherra hafi látið hana hafa upplýsingar um konuna sem sendi bréfið. Þetta er ekki í samræmi við það sem kemur í sérstakri leiðréttingu forsætisráðuneytisins "um meintan trúnaðarbrest" þar sem segir að fyrir utan tölvupóstssamskipti hafi engin önnur samskipti átt sér stað um málið.
Hvort er það?
Lítur ráðuneytið svo á að það teljist ekki samskipti um málið að ráðherrann fái nafn og heimilisfang konunnar og fari svo að hringja ítrekað í hana og mæta óboðin á heimili hennar?
Það er líka áhugavert að sjá að ráðuneytið tjáir sig ekkert um málið að öðru leyti. Þetta er náttúrulega ein útgáfan af stjórnsýslu, ef forsætisráðherra er sent bréf með upplýsingum um mál sem varða tiltekinn ráðherra, má viðkomandi þá eiga von á því að að sami ráðherra banki upp á heima hjá viðkomandi nokkrum dögum síðar?
@AsiPals Ráðherrann hefur lýst því þónokkrum sinnum opinberlega hvernig þetta mál þróaðist og þar kemur fram að þau hafi ekki greitt af láninu frá því upp úr hruninu.
Það er fróðlegt að sjá svart á hvítu eftir allt saman hvað „ofbeldið“ og öll gífuryrðin og drullið á embættismenn, dómara og kjörna fulltrúa snýst um í raun og veru.
Í stuttu máli er þetta svona: Fasteign er keypt árið 2007 á 55 milljónir króna með 30 milljón króna láni. Ekki er greitt af láninu frá 2009 til 2017, eða í 8-9 ár en samt er búið í húsinu allan tímann.
Eftir að húsið fer á nauðungarsölu og verður eign bankans, fær ráðherrann og maður hennar samt að kaupa eignina til baka í árslok 2019 á **55 milljónir króna**. Markaðsverð á þessum tíma hefur verið a.m.k. 85-90 milljónir króna og virði svona eigna í dag er að lágmarki 130-140 milljónir.
Væri fróðlegt að vita hvort fólki muni standa þetta almennt til boða, þ.e. að búa í húsinu sínu í tæpan áratug án þess að borga af lánum, kæra bankann bak og fyrir vegna nauðungarsölu en fá samt að kaupa eignina til baka á 12 ára gömlu verði.
Til að toppa þetta er svo farið í skaðabótamál við ríkið upp á 11 milljónir (heildarkrafan líklega 16-17 milljónir með vöxtum) og þegar málið tapast lætur ráðherra í ríkisstjórn Íslands það út úr sér að það sé ekki hægt að gera ráð fyrir neinu réttlæti fyrir íslenskum dómstólum!
Það virðast hvorki hafa verið greiddir vextir né afborganir. Þetta lán var gengistryggt og væntanlega hækkað mjög hratt eftir hrunið en gengistengingin var metin ólögmæt 2010-11 og í fólki boðið að greiða einhverja fasta greiðslu inn á lánin. Þarna virðist samt ekkert hafa verið greitt. Ekki heldur frá 2014 þegar endurútreikningur lá endanlega fyrir.
Gotta love stjórnmálaskýringar vinstrisins. Það að Inga Sæland hafi skipt um skoðun eftir spjall í ríkisstjórninni og sent tilskipun um að borgarfulltrúi FF mætti ekki halda áfram í meirihlutaviðræðum, þvert á fyrri yfirlýsingar, já það var augljóslega Einar að plotta yfir sig...
Litla dæmið þegar 5000 millistjórnendur á tvinnbílum með gráðu í opinberri stjórnsýslu búnir að downa 2-3 bríó 0,0% verða komnir með augnskugga að garga ‘depsite all my rage I am still just a rat in a cage’ í höllinni í ágúst
Jújú það er hægribylgja í heiminum og allt það en að enginn ykkar vinstri woke-warriorana hafi nýtt þetta layup og hlekkjað sig við trén í Öskjuhlíðinni er bara sloppy!