Vonandi sjá sem flestir sér fært að mæta og styðja við afar verðugt málefni. Ása var sárt saknað á HM úti í Makedóníu, þar sem Katrín Anna dóttir hans og stelpurnar í U18 stóðu sig frábærlega. #handbolti#handkastið
@thorgrimur_e Nei, það er nefnilega ekki alveg sami hluturinn. Þetta er kannski orðið alltof heimspekilegt, en mér finnst grundvallarmunur vera á því að allir fái jafnt vs. að þeir sem þurfa á meiri aðstoð að halda, fái hana. Þar koma t.d. skattþrepin inn.
@hawk_attacks Hvað með þetta: Í stað þess að byggja allt okkar á svona vangaveltum, að taka bara samtalið og sjá hver niðurstaðan verður? Ef við náum þessu í gegn, snilld. Ef ekki, nú þá kjósum við bara nei þegar að því kemur. Þarf ekki að vera flóknara en það.
@himmi78@kjassiturbo Elsku vinur, nú erum við komnir í tvö samtöl um sama málið. Ég ætla að smella mynd í sjónvarpið og fara að njóta. Mögulega Indiana Jones, er í Harrison Ford stuði. Njóttu vel og við höldum áfram þessum rökræðum fljótlega. 🧡
@himmi78@kjassiturbo Það þykir mér ansi ólíklegt, enda var þessi ríkisstjórn ekki kosin út frá inngöngu í ESB og aðild að ESB er stærra og meira en einhver ein ríkisstjórn. Sem er einmitt ástæðan fyrir þjóðaratkvæðagreiðslunni.
@himmi78@kjassiturbo Úff, þetta var hádramatískt! 😉 Hún er álitsgjafi. Hún situr ekki við neitt samningsborð. Og nei, samningurinn er ekki skýr því það er enginn samningur eins og er. Hann verður hinsvegar skýr, ef við fáum tækifæri til að semja um hann. Væri það ekki snjallræði?
@himmi78@kjassiturbo Við komum til með að sjá það í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Ef svarið er nei, nú þá er það bara vilji þjóðarinnar og áfram gakk. Ef svarið er já, nú þá er það bara vilji þjóðarinnar og áfram gakk.
@himmi78@kjassiturbo Úff, góður punktur. Bara ef við hefðum nú einhverja góða leið til að komast að því hvernig samningurinn myndi í raun og veru líta út..... 🤔
@kjassiturbo Ok, ég er ekki sammála því en það er kannski bara munur á skoðunum. En ef Noregur gat farið í og klárað aðildarviðræður og svo kosið formlega um inngöngu, ekki einu sinni heldur tvisvar, þá ættum við að geta það líka? Sérstaklega því Norðmenn sögðu nei í bæði skiptin...
@einarjoh Var að klára, hressandi myndband. Ég myndi telja að staðan í Evrópu sé töluvert breytt frá því þessar skemmtilegu samræður áttu sér stað. Nú og ef það verður samt raunin að það sé ekki hægt að semja um neinar undanþágur, þá segjum við einfaldlega nei þegar að því kemur. Punktur.
@kjassiturbo Það á eftir að ganga frá öllum atriðum í samningnum sjálfum. Ef það kemur já í ágúst, þá verður farið í þá vinnu og þegar henni er lokið fær þjóðin valdið til að kjósa formlega um hvort við göngum í Evrópusambandið eða ekki. Það er mjög skýrt.
@grok@seanapriori@KyleTibbitts But which services does NYC provide to it's people that The State of Florida does not, but rather Florida's counties and cities...?
@GulliValgeirs Ég leyfi mér að gera orð Mattheusar að mínum elsku vinur.
20.16: "Þannig verða hinir síðustu fyrstir og hinir fyrstu síðastir."
23.12: "Hver sem upp hefur sjálfan sig mun auðmýktur verða en sá sem lítillækkar sjálfan sig mun upp hafinn verða."
Kærleikur. Núið. Áfram veginn. 🧡
@GulliValgeirs Orðskviðirnir 16.18-22 elsku vinur:
"Dramb er falli næst, hroki veit á hrun. Betra er að vera hógvær með lítillátum en deila feng með dramblátum. Vel farnast þeim sem vel rækir erindi sitt og sæll er sá sem treystir Drottni."
Gangi þér og þínum allt í haginn, lífið er núna. 💙