Ég entist í að horfa á When They See Us í næstum því hálftíma áður en ég gafst upp og sit hérna í reiðiskasti og vonleysi yfir því að það sé hægt að gera þetta við aðrar manneskjur.
Ég gúgglaði og las mér til um málið og mæli með að þið gerið slíkt hið sama.
Takk og bless.
Við gefum næsta FIFA 19 fyrir PS4 í hádeginu á morgun (15. okt). 🎮
Til að vera í pottinum er nóg að fylgja okkur á Twitter og skella í eitt nett RT! ⚽
#fotbolti#fotboltinet
Við gefum næsta FIFA 19 fyrir PS4 í hádeginu núna á miðvikudaginn (10. okt). 🎮
Til að vera í pottinum er nóg að fylgja okkur á Twitter og skella í eitt nett RT! ⚽
#fotbolti#fotboltinet
Sá jaðarhópur sem ég tengi hvað minnst við er sennilega iPhone eigendur sem einhverra hluta vegna ákveða að hafa prósentutöluna ekki sýnilega við batterístáknið
Það gleymist alltof oft að horfa aftur á sjónvarpsefni og kvikmyndir með öðrum augum en upphaflega. Tengingar, þemu, tilvísanir, persónusköpun og atriði sem maður sér í allt öðru ljósi heldur en við fyrsta áhorf.
Ég hef aldrei staðið við neitt áramótaheiti jafnhart og það sem ég setti mér í lok árs 2017. Að horfa aftur á Breaking Bad eftir 3 ára hlé frá síðasta áhorfi. Þvílíkt eðalefni.
Ég er búinn að spila svo mikinn Football Manager síðustu daga að ég er hættur að líta á knattspyrnumenn sem manneskjur, nú horfi ég bara á þá sem tölur á skjá. Ætli endurskoðendum líði svona?
Ég elska að skrifa lista yfir dagsverk, fullur af eldmóði og metnaði og bjartsýni yfir því hvað lífið er gott. Standa svo upp úr rúminu rétt fyrir kvöldmat, horfa á listann, krumpa hann saman og henda honum í ruslið