Önnur sería Fyrsta bliksins fór í loftið í kvöld á Stöð 2
❤️ Svo glöð í kvöld og stolt af öllu fólkinu á bak við þáttinn og yndislega fólkinu í þættinum. Hlakka til að heyra hvað ykkur finnst 🥰🍒🌹
#fyrstablikid
Fólk sem mótmælir launahækkun leikskólakennara hefur örugglega aldrei haldið barnaafmæli fyrir heila leikskóladeild í 100m² húsnæði.
650.000 kr ættu að vera byrjunarlaun fyrir þessar hetjur sem leikskólakennarar eru!
Vodafone hefur opnað fyrir gjaldfrjáls símtöl frá Íslandi til Úkraínu sem venjulega eru mjög dýr 🙏 Ég skora á @siminn, @hringdu og @nova_island að gera slíkt hið sama og auðvelda þar með fólki hér á landi að hafa samband við ástvini sína í stríði eða á flótta. Koma svo! 💙💛
Íslensk stjórnvöld eiga tafarlaust að veita fjölskyldum úkraínsks fólks sem búsett er á Íslandi skjól, ásamt því að hefja undirbúning móttöku fleiri flóttamanna. @Bjarni_Ben@katrinjak@SigurdurIngiJ
Ég er í samskiptum við vinkonu mína í Úkraínu og spurði um leiðir til að hjálpa þannig hér er þráður af linkum sem hún sendi mér og bað mig um að deila:
Ég er lagahöfundur, pródúser og artisti. Ég er ein af örfáum kvk á íslandi sem pródúserar tónlist og sl ár hef ég unnið 90% með tónlistarkonum við að búa til nýja tónlist sem ég er svo spennt að deila. Sólóstöff, RED RIOT, Una Torfa, Þórunn Antonía, Heía, Sun City,Valdís ofl 1/5
Frumburðurinn minn verður 19
ára á morgun, eftir smá stund. NÍTJÁN ÁRA!
Ég kalla hann ennþá stundum Snúlli litli Snúlluson og ætla aldrei að hætta því! Jesús góður og guð hvað ég dýrka’ann og elsk’ann mikið. Djöfull er geggjað að fá að vera mamma❤️
Var loksins að ná að klára lokaþætti Svörtusanda. Tár, gæsahúð og allar tilfinningarnar. Mögulega besta íslenska efni sem ég hef séð. Allar tengingarnar, leikurinn, litirnir, lögin og textarnir…Úff! Seríu 2 eða ég tjúllast! #svörtusandar “They can’t hurt you now”