Ég á 3 ára eineggja tvíbura. Í gær reif ég þá á fætur snemma og þegar ég var að klæða hálfsofandi Elvar bendir hann á Aron og spyr: ,,mamma, hvort er þetta Aron eða Elvar?’’
Aron var veikur heima í dag með pabba sínum. Áður en við Elvar fórum útí daginn kvaddi hann bróður sinn með að segja : Bless Aron ég elska þig Aron! Og Aron sagðist elska hann líka ♡♡♡ ég þurfti að minna mig á þetta móment eftir öll slagsmálin þeirra núna seinni partinn
ekki mín hugmynd en ekki gleyma að kenna krökkunum á paint, gamalt og gott forrit sem hefur komið ser mjög vel i gegnum tíðina ;);) @jonsdottir_asta#bláskógaskóli#BINGÓ
Þau eru ólík verkefnin þegar maður vinnur í grunnskóla, fékk loksins að vera MUA í dag :) (MUA=make up artist, fyrir samstarfsmenn sem skilja ekki)#menntaspjall#bláskógaskóli
Ég stökk af stað til að stoppa köttinn og þá fóru strákarnir að hágráta því ég stökk svona fyrirvaralaust af stað......Annars er bara dans á rósum að eiga tvíbura 😊
Ég á næstum því 3 ára uppátækjasama tvíbura. Í kvöld var ég að undirbúa kvöldmatinn þegar ég heyrði í E þar sem hann var að reyna að stela ís úr frystinum
Þegar við svo sátum í sófanum og vorum að ræða af hverju mamma hefði ekki verið glöð heyri ég í kettinum þar sem hann var að reyna að stela kvöldmatnum sem ég hafði verið að undirbúa.