Kærastinn minn er búinn að vera erlendis í gauraferð í tvo daga og á þeim stutta tíma hefur hann keypt Hawaii skyrtu, Crocs skó á son okkar og ætlar að raka á sig á mottu. Gjörsamlega að gaura yfir sig
Veit ekki hvort verra, öll móskítóbitin sem ég fæ ofnæmisviðbrögð við eða öll ummælin frá öðru fólki sem segir mér að ég sé mikið bitin eins og ég sjái það ekki bersýnilega og finni fyrir því
Ég tók með mér þrjár bækur (og Kindle) til að lesa í þriggja vikna sumarfríi á Ítalíu og virðist því að hafa gleymt því að 10 mánaða sonur minn sem má helst ekki líta af í hálfa mínútu væri með í för
Kærastinn minn tók að sér aðstoðarkennslu í BA-áfanga í HÍ. Kennslan felst í því að hann fer yfir öll heimaverkefni og lokaverkefni nemenda og ber í raun ábyrgð á því hver ná áfanganum og lokaeinkunnunum. Fyrir alla þessa vinnu fékk hann rúmlega 60þ kr borgaðar eftir skatt 🙃
Ég gleymi oft bókamerkjum inn í bókasafnsbókum þegar ég skila þeim. Í eitt þessara skipta hafði ég notað kort sem ég fékk í útskriftargjöf sem bókamerki og núna, tveimur árum seinna, tók skyldmenni þeirra sem gáfu mér kortið sömu bók og kortið var ennþá þar. Smá vandró, smá sætt
Það besta við að vakna snemma á morgnana er þessi gífurlega sterka tilfinning að finnast ég vera betri en þau sem eru ennþá sofandi (sem ég væri líka ef ég gæti)
@ssarabk Algjörlega sammála, ég er frekar buguð eftir þessa önn og treysti mér ekki til að fara vinna með námi og því að vera foreldri og finnst galið að það eigi að vera normið
Ég er alltaf að lesa og heyra um einstæðar mæður margra barna sem vinna 100% vinnu samhliða 100% námi og hér er ég, í sambúð og bara í fullu námi samhliða því að vera heima með einn 9 mánaða og ég vil vita hvaða eiturlyfjum þessar ofurkonur eru á
@ValaArna Já, vissulega satt. Ég bíð spennt eftir dagvistunarplássi enda ein af þessum vondu mæðrum sem finnst næs að tjilla án barnsins míns af og til