@enitsirkasa Gera grunnuppskrift af ís og græja svo allskonar útgáfur í minni box. Kaffi fyrir þig, hægt að bæta við toblerone eða daim eða einhverri snilld, smartís eða eitthvað annað skemmtilegt fyrir kröfuhörð börn. Möguleikarnir eru óþrjótandi🍦🍦
@DoooHelga Já algjörlega, ekki að hera lítið úr því. Finnst bara pirrandi að setja þetta upp eins og það felist ekki jafnrétti í jöfnu fæðingarorlofi. Margt þarf að laga í kerfinu og væri eðlilegt að konur ættu veikindarétt eftir fæðingu. Fáránlegt að stilla upp á móti feðraorlofi.
To be fair er meiri vinna að hugsa um barn frá 6-12m en 0-6. Ég er búin að vera heima að gefa brjóst og horfa á tv í 6 m. Var óvinnufær í viku max. Nú fæ ég að komast aftur út í fullorðinsheiminn og Birkir tekur tímann sem snýst um að elta barn allann daginn svona á svipinn:😬
Jafnrétti í fæðingarorlofi? Þar sem konur safna sér saman, andlega og líkamlega, eftir fæðingu og þurfa að hugsa um nýfætt barn á meðan, en karlar fá hraustir og sprækir að hugsa um nokkurra mánaða gamalt barn.
@jonasreynir Geggjað sammála þér á sumum miðlum…
Einhverstaðar verður að byrja, læra, prófa. Ef ég keyri útaf er betra að ég reyni að komast aftur uppá veg en að ég haldi áfram utan því ég er ekki lengur pure vega-ni. Á pottþétt eftir að keyra oft útaf, skárra að vera á vegi þegar ég get.
@aldavigdis Ég er ekki alveg sammála því, ég búin með diplómu - það opnuðust svolítið augun mín þar fyrir því að femínismi gæti verið allskonar, ekki bara einn ríkisfemínismi. Mastersnám er líka sjálfstæð þekkingarleit, ekki bara mötun. Held að það væri mjög gaman að skoða þessa gerjun núna.
Sko það sem ég hef komist að við þessa femínisma-, kynfræðslu-, bdsm- og klámumræðu er að mig langar í meiri kynjafræði í háskólanum, klára master, tala og skrifa. Mà vera endalaust í skóla?
Vonandi verða einhverjar breytingar á framboðslistum fyrir borgarstjórnarkosningar. Ég vil sjà nýjar áherslur og almennilegt átak í leikskólamálum. Núverandi meirihluti virðist staðnaður en það eina sem er minna spennandi er núverandi minnihluti.
VG virðist vera alveg sama um allt svo framarlega sem Katrín fær að vera aðal. Skiptir bara màli hver stjórnar á ríkisstjórnarfundum? Skiptir engu máli hver stjórnar sérstökum málaflokkum?