@brynhildurbolla Þessi verð (39.000 mán) fela oft í sér mjög takmarkaðan innanbæjar akstur, verðið eykst fyrir hverja hundruði kílómetra sem þú ætlar að nota hann. Svo ef þú ert að spá í fyrir sumarfríið getur verið að þetta sé hærra.
@liljakrj @naglalakk Hahaha myndi segja að það væri mjög gott, ljúfar prófaminningar frá Háskólatorgi! Ég byrjaði sko líka að drekka Orku þá útaf áhrifum frá þér og drakk í gegnum allt grunnnámið - hef ekki smakkað hana síðan 😅
@BrynjaHuld Mér finnst flensa einmitt svo vægt og ömmulegt orðalag, "ææ ertu með flensu skinnið mitt". Alls ekki endilega vísan í inflúensu þó það gæti alveg átt við. Finnst pest aftur á móti hljóma mun verra. En þetta er byggt á nákvæmlega engu nema tilfinningu.
@bragibrella@brynhildurbolla Skil pælinguna með að vona að einhver bjóði mjög hátt verð í einhverri geðshræringu, vitandi af hærra boði. En mér finnst svo sem bara allt í besta að koma í veg fyrir slíkt. Haldiði að það sé eitthvað algengt hvort eð er?
@bragibrella@brynhildurbolla Nefnilega. Þó að fólk reyni að bjóða eins lágt og það kemst upp með þá myndi það oft hækka boðið ef allt væri uppi á borðum. Skil ekki hvernig það er ekki öllum í hag að vita hin boðin og taka þannig upplýsta ákvörðun.