Hvenær náum við þvi marki að kostnaður samfélagsins við að bjarga Bláa lóninu verður svo mikill að óeðlilegt verði að eigendur og aðrir fjármögnunaraðilar þess fái að njóta alls ábatans óskert?
Veistu. Þegar tvær vikur eru í kosningar mun það skila litlu að reyna að færa fókus á nokkuð óumdeilda þróun í málnotkun (hingað til). Ég ætla að fullyrða að atkvæðapotturinn sem þetta myndi hræra í telji einn eða tvo tugi atkvæða.
@jokull Á þessu eyðublaði, sem langflest skiluðu rafrænt í gegnum þjónustusíður Skattsins, gerðu framteljendur grein fyrir tekjum sínum á árinu 2023. Rökréttar væri að kalla þetta 'Skattframtal fyrir árið 2023' eða bara 'Skattframtal 2023' þó skilafrestur hafi verið á árinu 2024.
Það þarf að vinda ofan af þeirri vitleysu hjá Skattinum að t.d. Skattframtal 2024 varði tekjur ársins 2023 og sama rugling með álagningarseðlana. Þetta væri alveg tilvalið stefnumál fyrir flokk í kosningabaráttu, að mínu mati.
Að teknu tilliti til fyrri rauna myndi ég segja að fyrirsögnin 'Stjórnarkreppa í Berlín' geti boðað jafnvel válegri tíðindi en fyrirsögnin 'Trump kjörinn forseti'.
Fun fact: Það stefnir í það að Ásthildur Lóa Þórsdóttir frá Flokki fólksins verði starfandi forseti Alþingis frá kosningum þar til nykjörið þing kemur saman.
@Stigurh Starfsaldursforseti tekur við við þingsetningu. Frá kosningum að þingsetningu er það forseti þingsins frá fyrra kjörtímabili sem starfar áfram sé hann enn þingmaður. Ella 1. varaforseti, svo 2. varaforseti o. s. frl.
@birkirh Fjölmiðlar eru þarna líklega að reyna að leiðrétta fréttatilkynningu landskjörstjórnar til að hún sé birtingarhæf. Tilkynningin á heimasíðu landskjörstjórnar er alla vega að öllu leyti með rangri táknsetningu út í gegn.
Það liggur við að ég myndi álykta að þessi tilkynning sé ógild þar sem í henni er ekki notað skiljanlegt íslenskt mál (þar með talið framsetning talna).
@Ziggi92@birkirh Ég hefði altént ekki ráðlagt henni að óska Höllu til hamingju þegar vel undir helmingur atkvæða hefur verið talinn og munurinn þó ekki meiri en hann er.
@birkirh Þau eru eitthvað fleiri en 41.000.
Það er ekki ómögulegt að samsetning atkvæðanna séu nægilega ólík þeim atkvæðum sem talin hafa verið til að sveifla þessu Katrínu í hag.
Ég er eiginlega alveg viss um að ég myndi sýna af mér óábyrga hegðun ef ég færi að gosinu.
Svona fyrirbæri voru pottþétt fyrirmynd sírenananna í Ódysseifskviðu.
@gislimarteinn@SigurdurIngiJ Það er eins og fólk geri sér ekki grein fyrir því að góð göngubrú er meiri háttar mannvirki. Sérstaklega ef hún á að vera aðgengileg hjólreiðafólki og þeim sem geta ekki gengið upp tröppur. Það er einfaldlega ekki pláss fyrir slíkt mannvirki á þessum kafla Hringbrautar.