Frændi minn varaði mig við að fara í sjóinn á næstunni þar sem Greenpeace væri á leiðinni. Ég veit ekki hvort hann átti við að ég liti frekar út eins og hvalur eða hvalveiðiskip 😮
Ég fer bara varlega í sjónum á næstunni...
Fjölskylduskemmtun kvöldsins var aðeins öðruvísi.
Við vorum ekki staðin frá borðinu eftir saltkjötsátið þegar blóðþrýstingsmælirinn var dreginn fram og gekk hringinn.
Ég hef séð fólk líta mjög vel út með húfu. Sum eru bara geggjað töff.
Ég er það alls ekki og það virðist ekki skipta máli hvernig efni eða lögun er á húfunni.
En ég geng samt stolt með nýju appelsínugulu #lífiðernúna húfuna mína 🥰