@ornulfar En er samt ekki löngu kominn tími á að leyfa orðinu “ráðherra” að þróast þar sem fleiri kyn en KK sinna því?
Ég opnaði ekki augun fyrir hvað ráðherra er skakkt yfir konur fyrr en 6 ára dóttir mín benti mér á það.
En það tekur eflaust tíma að venjast breytingum á málinu ☺️
Eru fjölmiðlar ekki að grínast?!
Veit ekki hvort ég hafi verið svona blind gagnvart jafnrétti kynjanna hingað til eða hvað er í gangi!
Tveir virkilega flottir frambjóðendur stíga fram í forsetaframboð, annað er kona og hitt er maður… sjáið umfjöllun fjölmiðla
@vigdishin Skammast mín enn fyrir að hafa spurt þig til vegar að WC hjá öðru ónefndu ft. ….mér til varnar hélt ég að þú værir forritari í hjáverkum og hefðir vel getað verið starfskraftur hjá umræddu fyrirtæki, ekki bara skemmtikraftur að bíða eftir að stíga á svið.
Random spurning dagsins kemur hér (alvöru spurning samt!)
Sýningin: Jól á náttfötunum …eru áhorfendur líka í náttfötum eða bara Gunni & @FelixBergsson 🤷🏻♀️🤷🏻♀️
Hlusta mikið á hljóðbækur og elska!
…en get bara ekki þegar lesarar taka uppá því að syngja (rammfalskt í 90% tilfella) þegar persónur í bókunum syngja 😮💨 fæ illt í eyrun!
Ég var að vinna með sömu greiðslu í vetur þegar hárið á mér var að koma aftur eftir krabbameinslyfjameðferð… er ég 35 ára gömul kona í joggingalla með aflitað hár 😅😅 …eða er ég 13 ára pjakkur? ENGIN VEIT !
Friendly reminder að frasinn "Þú veist að þú getur alltaf hringt í mig" er verri en enginn fyrir aðstandanda langveiks einstaklings, þó að hugsunin komi frá góðum stað.
Ef þú þekkir einhvern sem er í þessari stöðu, hringdu.
Ekki setja það á aðstandandann.
@Muffin_breath Ég hélt í smá stund að við ættum sömu mömmuna!
…fattaði að þetta væri ekki mín, því hún er að vinna með að svara “k” inn á milli “já”-anna.
#elskumþessarmömmur
Fór með raddsterku og kraftmiklu 2 ára stelpuna mína á kaffihús…
…og auðvitað var gamall karl sem þurfti að sussa á hana og þegar það bar ekki árangur fann hann sig knúinn til að segja “þið þurfið nú að fara að ala stelpuna upp” við okkur foreldrana 🤬🤬