Í dag hringdi í mig fyrirtæki og spurði hvort ég ætti 2 mínútur lausar. Ég viðurkenni að ég nennti ekki neinni söluræðu í dag svo ég svaraði nei því miður, ég er bara í vinnunni. Og þá svaraði maðurinn á móti nú áttu ekki lausar 2 mínútur á launum?
Uuu ok. Spes svar. 🙂
@sofusarni Fékk mér snakk og guacamole í kvöldmat, því hver nennir að elda á mánudegi. Og m&m í eftirrétt. Þessi mánudagur varð betri við þessa máltíð 🙂
Oftast þegar ég er að leggjast upp í rúm til að fara að sofa, þá kveiki ég á Friends í iPadinum, sný mér á hina hliðina og fer að sofa. Það er svo vinalegt.
@RobertArnar97 Ég átti alltaf að heita Teitný Sif, eftir langömmu minni. Hún vildi þó ekki láta skíra eftir sér því henni fannst nafnið svo óþjált… það væri það samt ekki í dag.