S6: Ég er í fæðingarorlofi núna en það sem ég ætla að byrja að gera á mánudaginn er að taka meiri tíma frá fyrir mig þökk sé #utisonline. Ég hugsa betur um aðra þegar ég hugsa betur um mig ➡️ í lífi og starfi! #menntaspjall
S5: Innsýn inn í skólastarfið í ár var frábær nýjung. Ég vil sjá meira af því hvað við erum að gera flott hér á Íslandi… og jafnvel erlendis líka? #menntaspjall
S4: Ég saknaði þess í ár að hafa ekki sameiginlegan fyrirlestur í upphafi sem setur “tóninn”. Mikilvæg fyrir þátttökupartý. Eitthvað sem tengir okkur saman, skapar umræðu og fær mann til að opna sig til að kynna sig og kynnast öðrum #menntaspjall
S4: Þátttökupartý eru 🔑
Skólarnir í Árborg komu saman. Partýið stækkaði frá því fyrir tveimur árum og ég get ekki beðið með að sjá hvernig það verður eftir tvö ár. Það eflir skólasamfélagið okkar að fræðast saman #menntaspjall
S3: Ég starfa í stórum skóla sem er í stanslausri naflaskoðun og vinnu. Mér finnst stoðkennslan okkar spennandi og mér finnst gaman og lærdómsríkt að fylgjast með henni #menntaspjall
Við Bragi kíktum úr fæðingarorlofinu í þátttökupartý í Vallaskóla á Selfossi #utisonline#menntaspjall Hér koma saman kennarar og fagfólk úr Vallaskóla, Sunnulækjarskóla, Stekkjaskóla og BES
Á köldum og blautum sumar-morgni: “Jæja, þurfið þið ekki að fara að klæða ykkur?”
5 ára: “Af hverju?”
Okei, náðir mér þarna. Góður punktur. Inni-á-nærbuxunum-dagur skal það vera #mömmutwitter
Gleymdi að skrá dóttur mína í lengda viðveru í frístund vegna starfsdaga í grunnskólanum. En svo fengum við bara COVID þannig þetta blessaðist allt saman. Björtu hliðarnar 🙏🏻