Öskrað á mig (á hjóli) að götur væru fyrir bíla fyrir framan Hlemm. Næst keyrt lífshættulega nálægt mér á ≈40km hraða á Laugavegi milli Barónsstígs og Vitastígs. Hef bílnúmerið sem ég sá vel eftir að við mættumst 100m neðar á Laugavegi. Hvar tilkynni ég ofbeldi? @logreglan
Fleiri akgreinar, bílastæði og bílainnviði? Þetta svar Warren við pælingum Elon Musk er gamalt en gott og útskýrir induced demand svoooooo vel með pizzu, aðgengilegasta konseptinu.👇🍕
Af hverju er bílvæðingin náttúrulögmál í þessu samfélagi? Eðlilegri fyrirsögn væri:
Stofnbrautir of umferðarþungar fyrir nýja íbúðareiti.
https://t.co/nJYtnMWnRV
Sá nýjan valkost í örflæði í dag og fékk mér stuttan snúning. Þetta fyrirtæki hét áður Byke og er með höfuðstöðvar í Berlín að mig minnir. Kraftmikil og sterkbyggð hjól rétt eins og Hopp.
var á hlaupahjólinu á Hverfisgötu, bíll lagður á miðjum hjólastíg, kemst varla við hliðina honum til að spyrja afhverju hann getur ekki verið annars staðar þegar ingó besti veðurguð birtist og segir mér að “get a job” og hætta þessu helvitis væli og hjóla bara áfram
Ríkið og borgin hafa ólíkar stefnur og tól til að vinna á bílismanum enda grundvallast afstaða þeirra til vandans á mjög ólíkum forsendum sem mótast af hlutverki þeirra og stöðu í kerfinu. Smá þráður... 👇
Ég hef hjólað mikið um borgina með nýhjólandi 5 ára syni mínum síðustu vikur. Gott v/ minni bílaumferðar, minni hættu fyrir dengsa, engrar mengunar og hjólandi fyrirmynda útum allt.
Þegar komið er úr kófinu, þurfa hjól atvinnulífsins endilega að vera undir einkabílum? #aðförin
Verið innilega velkomin í samanburð milli Sundlaugarvegar austan Kringlumýrarbrautar og Háaleitisbrautar sunnan Miklubrautar
S: 11.646 bílar á dag
H: 9.447
S: 30 km gata
H: 50 km
S: 30 metrar milli húsa í götukassa
H: 80 m
S: Sæmilega mannvænleg
H: Keyptu þér bíl auminginn þinn
Já ég skil. Það hjóla svo margir í Hollandi út af því að veturinn er svo stuttur, ekki út af því að stjórnvöld veita miklum fjármunum í innviðauppbyggingu fyrir hjól. Takk @visir. Vissi þetta ekki áður en ég las þessa grein. Takk. #aðförin
Engan veginn nægilega áberandi og ekki með neinn hlífðarbúnað í umferðinni. Merkilegt að hún lendi ekki oftar í því að ekið sé á hana. Fiskbúðin þ.e.a.s. #aðförin
https://t.co/DyEjKJvTmp
Við mælum með að fólk geri sér ferð í Mjóddina í dag og komi ábendingum sínum til skila. Ábendingar í ferlinu eru árangursríkari leið en kvartanir eftir á 🚌
Strætó mun halda opið hús á göngugötunni í Mjódd í dag milli kl. 15:00-18:00. Á opna húsinu geta áhugasamir komið við, kynnt sér leiðanetið og komið sínum ábendingum á framfæri við starfsfólk Strætó og verkefnastofu Borgarlínu. @billausis
Í kvöld kl. 19:30 verður aðalfundur Samtaka um bíllausan lífsstíl á Kexinu (Gym&Tonic). Ég hvet ykkur sem hafið áhuga á urbanisma til að mæta. Skilyrðið er að vilja auðvelda fólki að vera án bíls, stundum eða alltaf. Góður félagsskapur, bjór og gott málefni.#aðförin@billausis
Half of the experiment is Gehl-approved 😉
Photographer removes cars and people to show the beauty of New York City architecture https://t.co/U4ZRAENrUN via @qz