Staðreynd um fjölskylduna mína sem fólki finnst oft merkilegt að heyra. Við erum fjögur alsystkin og heitum, í þessari röð: Bjartur, Birta, Bjarmi
og Sveinn Fannar.
Á föstudaginn fór ég með magaverki á sjúkrahúsið og var strax send í rannsóknir. Í blóðprufunni, myndatökunni og skoðuninni kveið ég því að þetta væri ekkert, ég væri móðursjúk og að sóa tíma allra.
Um kvöldið var botnlanginn tekinn.
@KristrunEmilia Þegar belgurinn var sprengdur fékk ég glaðloftið og sá einhvern veginn senuna úr Titanic þar sem allt flæddi um stóra stigann. Hef alltaf átt mjög erfitt með því að útskýra það almennilega 😅
@larrybird1312 Voru greinilega að ræða Euro Jackpot vinninginn sem Daninn fékk, ég er sjálf búin að eiga svipað samtal nokkrum sinnum síðan hann vann þetta. Svo ég tengi.
@Viskan Skil vel með eineltiskvíðann 😕 ég velti þó fyrir mér hvort það séu ekki breyttir tímar varðandi að fá notaða hluti? Með tilkomu allra þessara Loppa það er? Er svo sannarlega ekki að stinga uppá því við þig að taka sénsinn á þínu barni, ég er bara að lifa í voninni.
@ErnaGeirs Þá myndi ég halda að það væri mun betra að efla fjarnám svo fólk gæti búið áfram í sinni heimabyggð og þyrfti ekki að flytja búferlum og þurfa að reyna að lifa á skammarlega lágum námslánum á meðan það borgar mun hærri leigu sem dæmi.
Finnst svo magnað að sjá hversu mörgum þykir sjálfsagt að við landsbyggðarfólk pökkum bara saman og flytjum svo íbúar hbsv. þurfi ekki að borga fyrir þjónustu sem nýtist okkur meira en þeim.
Hvert viljið þið setja okkur öll?
@ErnaGeirs Fyrir utan að það er ekki hagur hbsv. að fá okkur endilega öll eða einu sinni mörg okkar suður. Ef við horfum til háskólanema hefur verið gífurlegur húsnæðisskortur og margir nemar t.d. með börn sem er erfitt að koma að á leikskólum.
Í sumar hefur sonur minn verið veikur í u.þ.b. tvær vikur í heildina, ég sjálf hef verið með flensu, fengið eyrnabólgu, ælupest (allt á meðan kallinn var á sjó) og er núna með covid (í 2. sinn) rétt fyrir verslunarmannahelgi.
Sumarið 2022 hefur basically ekki verið mitt sumar 🥲
@ragnheidur_kr Úff já, mun strangari reglur og takmarkanir þá 😬 ég missti af því að kíkja á Eistnaflug fyrr í sumar því þá var ég með ælupest og ég missi af því að hitta vinkonu mína sem kemur frá Svíþjóð núna um helgina og að hitta ömmu og afa sem hafa bara einu sinni hitt son minn 😭