Alltaf gaman að blaða í mogganum á helgidögum, en stundum er eitthvað sem stuðar mann rækilega úr fríinu:
Þorgerður Katrín skrifar hér pistil um lífskjör og möguleika en nefnir ekki hversu ójafnar forsendurnar eru milli landa og milli stétta. Víst er að kjör námsmanna eru kröpp á Íslandi. Það er illmögulegt að framfleyta sér á námslánum og því vinna langflestir námsmenn samhliða. Þó er það þannig að launakjör eru há og verðþróun styrkir eignastöðu þeirra sem eru nógu lánsamir til að ná fasteignakaupum og standa undir afborgunum. Það er mikilvægt að við reiknum samanburðinn á kjörum Íslendinga og annarra áður en við fullyrðum um brauðmolabreytur. Annars endum við á ódýrum punktum um verðlag kaffibollans í kjarakrepptum Evrópuríkjum.
Fíllinn í herberginu er skilin milli þeirra sem hafa völd, tengsl og innherjaupplýsingar og þeirra sem hafa það ekki. Þorgerður Katrín er sá aðili sem mest hefur notið forréttindanna sem hún þykist nú geta alhæft um.
Samkvæmt rannsóknarskýrslu Alþingis um fall bankakerfisins fékk eiginmaður Þorgerðar, Kristján Arason (þá framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Kaupþings) kúlulán upp á allt að 1.700 milljónir króna frá bankanum til hlutabréfakaupa í bankanum sjálfum. Samkvæmt vísitölu neysluverðs Hagstofunnar (315,5 stig í september 2008, 674,6 stig í febrúar 2026) jafngildir þetta um 3,6 milljörðum króna á verðlagi dagsins í dag. Þorgerður Katrín sat á sama tíma sem ráðherra í ríkisstjórn og varði bankana af krafti, meðal annars með þeim ummælum að sérfræðingur Merrill Lynch sem varaði við bankahruninu „þyrfti á endurmenntun að halda.”
Í byrjun árs 2008 (ári fyrir þjóðnýtinguna) fengu hjónin heimild frá þáverandi bankastjóra til að færa hlutabréfaeign sína og skuldir af eigin kennitölu yfir á einkahlutafélagið 7 hægri ehf. Markmiðið var augljóst. Þorgerður ætlaði ekki að vera persónulega ábyrg fyrir fjárfestingunni ef illa færi. Hún nýtti öll möguleg hagsmunatengsl til að tryggja að svo yrði ekki. Almenningur var skilinn eftir með reikninginn.
Þann 30. september 2008, daginn eftir að Davíð Oddsson hafði mætt á ríkisstjórnarfund og upplýst ráðherra um yfirvofandi hrun bankakerfisins, seldi Þorgerður Katrín hlutabréf í Kaupþingi fyrir 68,9 milljónir króna (sem jafngildir rúmum 147 milljónum á núvirði). Viku síðar hrundi bankakerfið. Skilanefnd Kaupþings krafði hjónin síðar um 534 milljónir króna vegna undanskota.
Þannig stóðu málin að hjónin báru enga ábyrgð á kúluláninu, sem var forsenda hlutabréfakaupanna, en þó fengu þau hagnaðinn óskiptann. Þau höfðu fengið hundruð milljóna í vasann, skellt skuldinni á almenning. Þannig losnuðu þau undan skuldum sem höfðu náð nærri tveimur milljörðum króna eftir hrunið. Á núverandi verðlagi jafngildir það um fjórum milljörðum króna.
Saga Þorgerðar Katrínar snýst um það hvernig innherjaupplýsingar skilja á milli þeirra sem græða og þeirra sem gjalda. Almennir Íslendingar sem keyptu hlutabréf í bönkunum töpuðu öllu. Venjulegt fólk sem hafði ekki innherjaupplýsingar, gat ekki fært skuldir sínar í einkahlutafélög og fengu engin kúlulán. Fólk sem tók mark á opinberum yfirlýsingum Þorgerðar Katrínar um að allt væri í himinlagi.
Er þetta manneskjan sem á að predika um lífskjör og lán? Er þetta manneskjan sem fær nú að semja um framtíð og fullveldi Íslands?
Ég hafna því alfarið. Mér er ekki skemmt og ég vona að fólk leyfi sér ekki að gleyma forsendum mála of auðveldlega.
2: Eat satiating foods, rich in animal protein, saturated fats and high quality carbs.
The French consume the most saturated fat on Earth and have the lowest incidence of heart disease.
Grassfed butter & sourdough are key, indulge proudly, guilt leads to snacking on trash later
@PalssonThordur@jonkaldal Byrjum á því að nýta innviðina sem eru til staðar og bætum flutningskerfið, sem er bæði að tapa mikilli orku og ekki að ná að dreyfa henni eftir þörf.
@RaggiHS@jakobhelgi@HilmarJokull Léleg eða svo lítið sem engin regluverk hér á landi, bjóða þessum Norsku hákörlum að eiga sinn síðasta dans í þessum bransa hér á landi. Þeir vita það það sjálfir að sjókvíeldi, á sér enga stoð í ESG hugsandi ríkjum og mjólka spenann hér þangað til partýið er búið.
@RaggiHS@jakobhelgi@HilmarJokull Er lausnin mengandi iðnaður sem hefur óæfturkræf áhrif á nátturúna? Eigum við ekki þá að fylla alla dali af kjarnorkuverum? Í fyrsta lagi eru þessi gjöld grín, allur hagnaður fluttur úr landi og lítið greitt af skatti hér.
🔥Just published🔥 What are the most nutrient-dense foods available for young children 6–23 m in South and Southeast Asia?
• Organs (liver, spleen, kidney, heart)
• Eggs
• Bivalves
• Fish
• Crustaceans
• Ruminant meat
• Dairy
• Dark leafy greens
👉🏼 https://t.co/cfDoXWRMPQ
@dadirafnsson Sammála því að íþróttasamtök veiti stuðning en ég held að tæknin í dag gæti leyst þetta. Við sjáum t.d. 17 ára drengi, flytja erlendis og iðka knattspyrnu. Allur skóli nánast 100% í gegnum internetið.
@dadirafnsson Með alla þá tækni sem við höfum í dag er galið að eyða fjármagni í að senda kennara út í keppnisferðir sem oftast eru ekki nema 7-14 dagar. Hérna í denn voru það bara gömlu góðu dæmaskammtarnir, lesefni ofl… og var það ekkert vandamál.