Er þetta eitthvað grín? Þarf einhver að minna Heru á að hún er að deila sviði með þjóð sem hefur nú myrt yfir 15.000 börn síðustu mánuði.
Firringin er algjör #12stig
Frú Ragnheiði skaðaminnkun bráðvantar lítil og létt tjöld í góðu ástandi fyrir skjólstæðinga sína sem berjast við heimilisleysi. Ákall til allra sem eiga slíkt og mega missa. Það má endilega deila þessari færslu sem víðast✌️
Ps. Eins og er vantar Frúnna ekki annað en létt tjöld.
Dear @jordanbpeterson - I want to inform you that in Reykjavík our Rainbow-street is not a signal of virtue but of human rights for all. And I am glad to assure you that the Rainbow-street is not seasonal - it is permanent - and so are human rights and our respect for them.
Afglæpavæðing vímuefna verður til þess að fólk hættir að hræðast að hringja eftir aðstoð. Ég hef sjálf farið í útkall á🚑 þar sem einstaklingur ofskammtaði, félagar hans hringdu í 112 og flúðu svo burt. Þeir hefðu getað veitt skyndihjálp. Útrýmum þessari hræðslu💔
Skaðaminnkun er oft svo misskilin. Hún er nefnilega svo miklu miklu meira en að gefa fólki hreinar nálar og sprautur.
Skaðaminnkun snýst fyrst og fremst um að koma fram við fólk sem notar vímuefni með mannúð,umhyggju og skilning en ekki afmanneskja þau með því að refsa þeim.
Naloxone er mótefni gegn ópíóíðum/morfínlyfjum (t.d. Contalgin, Oxycontin, Fentanyl og Heróín).
Ópíóíðainntaka yfir þolmörk getur valdið öndunarstoppi, Naloxone getur snúið því ástandi við.
Enginn skaði fylgir því að gefa lyfið sé þess ekki þörf.