Kláraði bókina Kona í síðustu viku og er byrjuð á bókinni Aldrei nema kona. Er mjög upptekin af því hvaða bók ég á að lesa þegar hún er búin, þetta er svo gott þema.
Fólk er jafnvel einn og hálfan tíma að komast til og frá vinnu þessa dagana. Sama fólk gæti keyrt bílana sína á miklu styttri tíma, eða haft það sjúklega næs í Borgarlínu, ef við fáum almennilegar almenningssamgöngur. Plís hættu Bjarni. https://t.co/Qq7jiytaZv
@Stigurh Eins gott. Mín tilfinning er að þessar seríur séu á undanhaldi, allavega nokkuð síðan ég hlustaði á þannig. Er samt með The Retrievals á listanum, frá sömu og gera Serial.
@Stigurh Rás 1 þættirnir eru náttúrulega eiginlega bestir. Hlustaði alltaf á Radiolab (enn í gangi) og Reply All (hætt). Katalógurinn þeirra er mjög góður. More Perfect fjallar um Hæstarétt BNA, gott fyrir nörda. Svo er náttúrulega skandall ef þú hefur ekki hlustað á Fílalag.
Tveir Vilhjálmar flottir í gær. Annar sagði að ef við vildum standa undir velferð á landinu þyrftum við að nýta auðlindir og hinn að við værum fiskveiðiþjóð. Það eru greinilega mjög sterk rök með hvalveiðum.
Það hefði verið svo stórkostlegt ef ríkisstjórnin hefði sprungið út af hvalveiðum, hagsmunum eins karls. Jafn hræðilegt að þau hafi látið undan hagsmunum þessa eina karls.
ISAVIA vill ryðja burt skógi í Öskjuhlíð, vill risa ljósamöstur á Ægisíðu og í Hljómskálagarðinn og höggva tré þar líka, er á móti Fossvogsbrúnni, íbúðum í Skerjó og á Hlíðarenda. Er ekki tímabært að viðurkenna að það er völlurinn sem er vandamálið en ekki borgin í kringum hann?
Gott að ökumaðurinn er ekki mikið slasaður. Það er samt svo óþolandi og óhuggulegt að gangandi/hjólandi séu ítrekað í stórhættu í miðri borg. Hjóla oft þarna, líka með son minn aftan á. https://t.co/9pIiFDDCxn
Ótrúlega skrítin afstaða SA í þessu máli, líka í ljósi þess að þau eru nýbúin að vera í herferð til að fagna fjölbreytileika. Að mínu mati er Hæstaréttardómurinn réttur og vel rökstuddur og það er ekki verið að sjúkdómsvæða það að vera trans. https://t.co/yjJOjJtHCz