Kjarni málsins er sá að Katrín Jakobsdóttir stendur of nærri sitjandi ríkisstjórn og núverandi þingmeirihluta til þess að geta verið forseti á núverandi tímamarki. Óskandi hefði verið að hún hefði tekið sér frí frá stjórnmálum í einhver ár áður en hún ákvað að fara í framboð.
Hvað getur Katrín Jakobsdóttir gert sem forseti sem hún gat ekki þegar gert sem forsætisráðherra? Ef sýnin er skýr og sannfæringin heit hví þá að sækjast eftir valdaminna embætti? Spyr sá sem ekki veit. #forsetakosningar
Menningarstríðið sem höfum séð stigmagnast víða erlendis á síðustu árum, sérstaklega í Bandaríkjunum, samhliða upplýsingaóreiðu og aukinni öfgahyggju er komið til Íslands af fullum krafti. Það skiptir máli að taka afstöðu! Áfram Samtökin 78. #hinseginleikinn
Að svipta fólk frelsi til sjálfshjálpar með því að meina því að vinna á sama tíma og því er vísað á götuna er jafn óskynsamlegt og það er ómannúðlegt.
#ekkiímínunafni#ekkiíokkarnafni
https://t.co/XRYtkCm34Z
Dómsmálaráðherra veit ekki hvort fullyrðingar hans um flóttafólk séu réttar eða rangar en er samt fullviss um að stjórnleysi ríki í málaflokknum. #ekkiímínunafni#ekkiíokkarnafni https://t.co/9UvheBwfWK
Það ætti að teljast mjög alvarlegt og hafa afleiðingar þegar æðstu ráðamenn í lýðræðisríki gerast sekir um ósannindi. #ekkiíokkarnafni https://t.co/E3FZjdJNdh
Mannvonska er ekki lögbundin. Núverandi þingmeirihluti er ekki eðlisbundin nauðsyn heldur val allra þeirra stöku þingmanna sem mynda þann meirihluta. Tími breytinga er kominn. #ekkiíokkarnafni
Hugsið ykkur að hafa það í hendi sér að geta slitið núverandi ríkisstjórnarstarfi og myndað nýja ríkisstjórn sem rekur mannúðlega stefnu í málaflokki fólks á flótta. Ef ekki VG hver þá? Ef ekki núna hvenær? #ekkiíokkarnafni
Stórtíðindi hafa orðið vegna fyrirhugaðra mestu fjöldabrottvísana Íslandssögunnar. Fordæmisgefandi mál vannst í héraðsdómi í gær. Stjórnvöld verða að bregðast við og veita fólkinu efnismeðferð. #ekkiíokkarnafni https://t.co/NPVO1HUBDs
Hægri popúlismi er hættulegur eins og dæmin sanna til lengri og skemmri tíma. Sigmundur Davíð fetar viðsjárverða braut þessi misserin með ummælum sínum. https://t.co/EHzh7R7rJD
@Helgavalan Hárrétt. Aðili sem telur sig hafa erfiðan málstað að verja vill oft semja. Verst að í sáttaumleitunum ríkisins hefur enginn vilji verið til þess að viðurkenna brot af neinu tagi.