Ríkisstjórnin ákveður að hækka skatta og segir að það hafi ekki áhrif á eitt né neitt. Fari hins vegar svo að einhver áhrif komi fram og fyrirtæki finni sig nauðbeygð til að bregðast við, þá verði sko bara bætt í og þeim refsað enn frekar. https://t.co/EvAqcZHEt7
Sjokker, ef Ísland gengur í ESB þá þarf Ísland að fara eftir lögum og reglum sambandsins! Þetta kemur álíka á óvart og ef íslenska landsliðið keppir á HM þá gildi rangstöðureglan líka um Ísland.
Aðildarsinnar þurfa að fara að koma hreint fram, aðlögunarviðræður snúast um inngöngu í sambandið en ekki að sjá hvað er í boði í matvælaverði enda er ekki verið að semja við erlendar matvörukeðjur eða um vexti enda veit enginn hverjir vextir verða eftir fimm eða tíu ár þótt það sé hægt að leggja mat á styrk eða veikleika þeirra hafkerfa sem standa að mismunandi myntum.
Það er heldur ekkert til sem heitir varanlegar undanþágur þar sem ESB er Evrópusamruni sem breytist eftir því hvernig pólitískir vindar blása en ekki fastbundið regluverk eins og t.d. stjórnarskrá Bandaríkjanna (meira að segja túlkanir á henni breytast yfir tíma).
Pakkinn er ESB og um hann verður kosið 29. ágúst.
@ORGrimsson@X’s automatic translation playing tricks on us. Good catch! Important to use the “Show original” feature if automatic translation is enabled.
@ORGrimsson frábær að vanda í gær á stofnfundi Áfram Ísland: “Mér er ekki sama um lýðveldið. Mér er ekki sama um árangurinn af þeim hundrað árum sem það tók að færa Íslandi fullgildan rétt í samfélagi þjóðanna frá því að Alþingi kom fyrst saman á ný 1845 og þar til lýðveldi var fagnað á Þingvöllum 1944. […] Á næstu hundrað árum þurfum við kannski að glíma á nýjan leik við fjarlægt vald og þá spyr ég í nafni kynslóðanna sem núna eru horfnar; til hvers var þá barist?”
English translation:
@ORGrimsson, as excellent as ever yesterday at the founding meeting of Áfram Ísland: “I care deeply about the Republic. I care deeply about what was achieved through the hundred years it took to secure Iceland’s rightful place among the nations of the world, from when Alþingi reconvened in 1845 to the founding of the Republic at Þingvellir in 1944. […] Over the next hundred years, we may now once again be subject to distant rule. And so I ask, on behalf of the generations who came before: Why, then, did we fight at all?”
Unfortunately, it seems the automatic English translation from Icelandic here on @X is incorrect. The correct translation of „Mér er ekki sama“ is of course “I do care,” NOT “I do not care.” I removed my original post because of the automatic translation, but I’ve reposted it with what I hope is a better English translation. A great speech and a powerful message, @ORGrimsson.
Um leið og íslenskur sjávarútvegur er sá eini í OECD með jákvætt skattspor - hátt í 100 ma árlega - fullyrðir Dagur B. að “þjóðin hafi ekki fengið nema brot af arðinum af auðlindinni” (Vísir). Er markmiðið að hann verði þá jafnóarðbær og í ESB?
https://t.co/hWirzG43eH
Nú hef ég rekist á nokkra svona pósta frá vinstrinu í dag, bæði á X og öðrum miðlum. Ekki heyrði ég þetta sama fólk kvarta undan því að ríkisstjórnin hafi fengið 57% þingsæta með aðeins 50% fylgi.
Það er ekki sama Jón og Séra Jón...
Þetta er ekki trúverðugur málflutningur hjá fjármálaráðherra. Skattar sem hann leggur á banka verða að fullu greiddir af haghöfum bankanna. Ef Seðlabankinn telur svigrúm til að minnka bindiskylduna samhliða hækkun skattsins þá breytir það engu um að kostnaður fjármálakerfisins verður hærri en hann hefði verið án skattsins. Það er líka sérkennilegt að fjármálaráðherra virðist vera að seilast inn á svið Peningastefnunefndar með að hvetja hana til að rýmka fjármálaleg skilyrði, það bendir ekki til að hann hafi mikinn skilning á nauðsyn þess að ná niður verðbólgunni. Trump er víða ...
“Vandinn í þessari umræðu núna er að margir eru farnir að tala að breyttu breytanda nánast eins og gömlu kommarnir töluðu um Sovétið nema nú eru Evrópa eða evran komin í staðinn. Ég hlustaði fyrir fáeinum dögum á þingflokksformann eins ríkisstjórnarflokksins segja hvað vilja menn ekki lægri vexti, lægra vöruverð, vilja menn ekki betri húsnæðiskjör og svo hélt listinn áfram, bara allt í lukkunnar velstandi. Maður bíður bara eftir því að það komi evru Ísland óskalandið hvenær kemur þú. […] Ég vona að forystusveitirnar sem núna eru á vettvangi Alþingis, ríkisstjórnar og annars staðar víki af götu þessara hugmyndafræðilegu átaka þar sem öll svör eru fyrirfram gefin og fari að ræða málin efnislega.“ @ORGrimsson
Mögnuð yfirferð líkt og búast mátti við @ORGrimsson - sérstaklega þó listi yfir “tíu raundæmi um ESB” eins og Ólafur kallaði það (1:11 í þættinum) - viðbrögð þáttastjórnanda á þá leið að Evrópuumræðan hefði formlega verið jarðsungin í CAD þann 7. maí 2026….
Á sama tíma og spunameistarar ríkisstjórnarinnar telja okkur trú um að evruvextir séu handan við hornið sem leysi okkur úr sjálfsköpuðum spíral verðbólgu- og verðbólguvæntinga, er rétt að rifja upp orð Jóns Daníelssonar fyrir um ári:
https://t.co/wsvNkg0Ftg