þetta er náttúrulega ekki hægt. samfylkingin hefur varla gert annað en að skipuleggja fokdýrt húsnæði á þéttingarreitum síðustu 10-15 ár og býður nú kjósendum að leysa vandamálið sem hún skóp sjálf. skil heldur ekki í Pétri að vera að hafa á orði að það þurfi að byggja íbúðir. saga hans á því sviði þolir tæplega upprifjun.
Það er rétt, að Kristrún skaut á Kópavog; mögulega af því að hún vill grafa undan framtíðarkeppinauti, sem Ásdís Kristjánsdóttir hefur alla burði til þess að verða.
En þetta var ekki síður áfellisdómur og heiftarleg árás á húsnæðisstefnu Reykjavíkurborgar undanfarna áratugi, stefnu Samfylkingarinnar og Dags B. Eggertssonar.
Sem kannski er önnur skýring á þessari einkennilegu áherslu Kristrúnar á Kópavog. Samfylkingin er búin að gefa upp alla von um annað en niðurlægingu í Reykjavík og bindur því vonir við að auka fylgið í Kópavogi.
Til þess að það hafi eitthvað að segja verður að fella hinn vinsæla bæjarstjóra þar og þess vegna einbeitir Kristrún sér að því, vill sem minnst talað um ESB-umsókn sína og alls ekki neitt um efnahagsmál.
Alltaf er það sama sagan með vinstripólitíkina - helsta haldreipið er að ala á tortryggni fólks gagnvart samborgurum sínum. Gengið út frá því að fólk verði svikið og snuðað af fyrirtækjum landsins nema ríkið stígi inn. Ömurlegt viðhorf.
þessi maður sem talar er fæddur og uppalinn í Bretlandi. ekki nóg með að þessi menningar- og hugmyndaheimur samræmist illa okkar vestrænu gildum, heldur er hann hreinlega ógeðslegur og hættulegur. hættulegri eru þó hin menningarlega afstæðishyggja sem mælir fyrir "inngildingu"
Mohammad Hijab tells Sneako that “pedophilia is very relative” and defended having sex with 13 or 14 year olds if they have “huge hips and huge breasts.”
mikilvægur punktur. við ráðum okkar auðlindum og landhelgi núna - á þjóðin að vera glöð að heyra um í komandi aðildarviðræðum verði allt kapp lagt á að þessi yfirráð verði ekki gefin eftir? betur heima setið en af stað farið ef einhver spyr mig.
@eidurharalds en er þáttur sem birtist eingöngu á spotify innlendur miðill? ég skil punktinn hjá þér en ég velti fyrir mér hvort fjölmiðlanefnd geti krafið menn um skráningar á íslandi þegar allt efnið er vistað og sent út erlendis.
hvernig stendur á því að fjölmiðlanefnd getur djöflast í stjórnendum hlaðvarpa sem birta sitt efni eingöngu á erlendum veitum ? hefur íslensk ríkisstofnun einhverja lögsögu yfir því sem varpað er af spotify eða youtube?