@hrafnjonsson Hann bíður líklega bara spenntur eftir nýju Rammstein plötunni. Með smá augnskugga og "piercings" er hann óþægilega líkur Till Lindemann...
@finnbogiorn @grettirgauta Ákvað að henda í auglýsingaherferð fyrir "farsímafélagið" SKO fyrir 12 árum síðan. Herferðin var reyndar alfarið greidd úr eigin vasa...
@haukurh Tekið af vef Stjórnarráðsins: "Stafræn ökuskírteini verða jafngild hefðbundnum ökuskírteinum á Íslandi en megintilgangurinn er að notendur geti sannað ökuréttindi sín gagnvart lögreglu."
Ef þau eru jafngild, þá geta bankar varla hafnað þeim sem löggildum skilríkjum.
Ef þú lendir einhvern tímann í því að vera óvænt staddur/stödd í Finnlandi að leita að þurrkara með varmadælu, þá áttu að biðja um Lämpöpumppurumpu. Þakkið mér síðar.
Ég: ,,Jæja amma mín, þá er ég bara búinn að hanna fyrir þig legstein á Internetinu!"
Amma: ,,Ha? Hvað segiru?"
Ég: ,,Já, en nú er það bara stóra spurningin! Hvaða dánardag viltu að ég setji á hann?"
@sverrirs Rannsóknir hafa leitt í ljós að þumalhringir hafa bein áhrif á tónlistarval. Nú held ég að þú ættir að taka þína hringi af og hvíla þá aðeins.