Böðvar Böðvarsson semur við ÍA!
Knattspyrnufélagið ÍA hefur gengið frá samningi við Böðvar Böðvarsson, sem mun leika með félaginu næstu tvö árin. Böðvar kemur til ÍA frá FH.
Böðvar er 30 ára gamall vinstri bakvörður með mikla reynslu úr efstu deild og atvinnumennsku erlendis. Böðvar á að baki 5 A-landsleiki fyrir Ísland og hefur leikið yfir 100 leiki í atvinnumennsku í efstu deildum í Svíþjóð og Póllandi. Þá varð hann Íslandsmeistari árin 2015 og 2016 með FH.
Við bindum miklar vonir við Böðvar sem bætir við miklum sigurvilja, reynslu og gæðum í leikmannahóp liðsins.
Velkominn á Skagann, Böðvar!
Myndir: Jón Gautur foto
Guðmundur Þórarinsson semur við ÍA!
Knattspyrnufélagið ÍA hefur gengið frá samningi við Guðmund Þórarinsson (1992), sem mun leika með félaginu næstu tvö árin.
Guðmundur kemur til ÍA á frjálsri sölu frá armenska félaginu FC Noah eftir 13 ára feril í atvinnumennsku erlendis. Á atvinnumannaferli sínum hefur Guðmundur leikið í Noregi, Svíþjóð og Danmörku, í MLS-deildinni í Bandaríkjunum og í grísku úrvalsdeildinni.
Á ferlinum hefur Guðmundur meðal annars orðið norskur deildar- og bikarmeistari með Rosenborg, meistari í MLS-deildinni með New York City FC, og deildar- og bikarmeistari með FC Noah.
Guðmundur á 15 A-landsleiki að baki fyrir íslenska karla landsliðið.
Það er stórt og mikilvægt fyrir Knattspyrnufélagið ÍA að Guðmundur hafi valið ÍA og Akranes sem næsta áfangastað á sínum ferli. Koma hans styrkir liðið og félagið í heild sinni og mun nýtast vel á komandi árum.
Myndband @jongautur_foto
Gísli Eyjólfsson semur við ÍA! Knattspyrnufélagið ÍA hefur gengið frá samningi við Gísla Eyjólfsson (1994), sem mun leika með félaginu næstu þrjú árin.
Gísli kemur til ÍA á frjálsri sölu frá sænska úrvalsdeildarfélaginu Halmstad FK. Hann hefur leikið 159 leiki í efstu deild á Íslandi og skorað í þeim 31 mark, auk þess sem hann hefur spilað 30 Evrópuleiki og 4 A-landsleiki fyrir Ísland.
Gísli var lykilmaður í Íslandsmeistaraliði Breiðabliks árið 2022 og hefur síðan þá leikið sem atvinnumaður í Svíþjóð. Gísli og fjölskylda hans munu setjast að á Akranesi, og við hjá ÍA bjóðum þau hjartanlega velkomin í Skagafjölskylduna.
Þetta er frábær innspýting í félagið og mikilvæg viðbót við leikmannahópinn. Velkominn á Skagann, Gísli 💛🖤
#fotbolti #kfia #gíslieyjolfs
90+1‘ BIG BIG GOAL! Ísak Jóhannesson gets the goal we deserve after a lovely run from Said El Mala. He matches it with the finish! GET IN!
___
2:2 #WOBKOE#effzeh