@fridrikeinarss1 Er ekki full gróft að stökkva beint í að hann hafi ætlað að nauðga henni eða eitthvað í þá áttina? Ég er ekki alveg seldur á að hann sé að "fitla við sig".
Getur ekki verið að hún hafi gleymt einhverju í bílnum, að greiðslan hafi ekki farið í gegn eða eitthvað annað... eðlilegt?
@SamuelTorfi Nei, en ESB aðild er ESB aðild. Annað hvort erum við inni eða úti. Við munum ekki fá einhverjar risa undanþágur frá landbúnaðar- og sjávarútvegsstefnunum ESB hefur margoft sagt það skýrt og greinilega.
@SamuelTorfi Ég er ekki í prinsippi á móti því að ganga í ESB, en það er margt sem gæti farið illa og fátt sem gæti batnað.
Í heildina, borið saman við heiminn, gengur okkur mjög, mjög vel á þessu skeri og þá er líklega ekki góð hugmynd að rugga bátnum fyrir einhverja útópíudrauma.
@GarunTh @frostis Hann tekur á þessum punkti. Metan brotnar niður í andrúmsloftinu, svo það safnast ekki upp eins og CO2. Þannig fylgir nautgripum fast magn af auka gróðurhúsalofttegundum, en ekki áframhaldandi aukning, sem er alvöru vandinn.
@Heidar_Heidars Þú ert bjartsýnn. Það eru einhverjir sem myndu borga tvöfalt meira fyrir íslenskt lamb, jájá. En meirihluti fólks sér ekki muninn og grípur hiklaust það ódýrara.
Heimurinn hefur breyst eitthvað síðan á áttunda áratug, en grundvöllur þorskastríðin stendur enn.
@Heidar_Heidars Þú þarft að bæta lesskilninginn þinn. Ég hef verið að segja sama hlutinn allan tímann. Ég notaði Spánverja bara sem proxy fyrir ESB. Ég sagði ekki granda landi. Venjuleg markaðsöfl drepa iðnaðinn. T.d. ísl. lambakjöt þegar helmingi ódýrara er flutt inn án verndartolla.
@sewerslvt1917 @indianaros6 Ef við tökum sem sagt örlítið ýktu útgáfuna af því sem ég var að segja. Er ég rasisti ef ég er tilbúinn til að bjóða mömmu minni herbergi ef hún missir heimilið, en ekki random Ísfirðingi? Þetta hefur ekkert með kynþátt að gera, heldur nánd.
@tanjaisfjord Það er ekki líklegt að þú sért að segja ósatt, en það eru ekki heldur hverfandi líkur á því (það getur alltaf verið eitthvað á bakvið). Það þarf þriðja aðila (dómstóla) til að komast að því hvað raunverulega gerðist.
@tanjaisfjord Þolandi er ekki sjálfkrafa lygari, þó frásögn sé ekki fullnægjandi sönnun. Tökum dæmi um þjófnað.
Þú getur augljóslega ekki bara sagt "hann stal milljón frá mér" og búmm, ég þarf að láta þig fá milljón. Að því leiti skiptir ekki máli hvort ég stal frá þér eða ekki.
@_bjornlevi_ Mér finnst það nú voða iffy þegar fólk er að mynda sér skoðanir á málum sem það veit lítið sem ekkert um og grípur í metafórískar heykvíslar. Það er einmitt tilgangur dómstóla að leiða í ljós málsatvik og beita svo refsingu sem við á.
Við megum stundum við því að anda bara rólega
@melluband Svo má ekki gleyma því að húsnæðisverð hefur alltaf hækkað hraðar en vísitala neysluverðs yfir lengri tíma, svo íbúðin á bak við lánið myndi verða margra milljarða virði.
@dagbjartur Ég er alls ekki að tala fyrir því, en að loka fyrir alla flóttamenn krefst alveg jafn lítilla afskipta lögreglu og að opna upp á gátt.
En á meðan við erum ekki með alveg opið eða alveg lokað mun alltaf birtast fólk sem þarf að vísa burt.