Það þarf að stöðva þetta Elf on the shelf ekki seinna enn í gær. Ég nenni ekki að sjá útfærslur ykkar á mínum samfélagsmiðlum. Enn einn þrældómurinn sem foreldrar hafa verið hnepptir í😔
Þar hafiði það….. verð með mína prívat kertafleytingu hér í vaskinum heima, öllum velkomið að halda sína eigin. Farvel Tostitos, við munum sjást einhver tímann aftur
Ég á erfitt með að trúa því að Ísland sé ein af hamingjusömustu þjóðum heims þegar það er ekki búið að vera hægt að kaupa Tostitos ostasósu á þessu skeri í MARGA MÁNUÐI
Uff man þegar ég mætti sirka vikulega að skoða opin hús fyrr í vetur og þar var iðulega smekkfullt af jakkafataklæddum miðaldra köllum í 200 þús kr úlpu með gucci gleraugu og þá hugsaði ég vááá nú verður seðlabankinn að fara stoppa þessa fyrstu kaupendur…
Lagið I bruise easily er í rauninni samið um mig😊 hef líklegast labbað á borð (eða verið stungin með forlátum atgeir) á föstudaginn og vaknaði með þetta ferlíki á lærinu
Hver flytur inn Tostitos vörur til landsins? Þarf að eiga smá orð við þann aðila. Ég er u.þ.b að deyja úr ostasósu skorti svo vinsamlegast gefið mér beint samband við þennan fúskara. Með fyrirfram þökk
Greinilega margir sem hafa ekki búið í Seljahverfi og vita ekki að það er nafli alheimsins og þ.a.l MJÖG stutt í allar áttir - suður, vestur, norður, austur og you name it!!! Stend og fell með þessari staðhæfingu😤