Veit ekki hver þarf að heyra þetta en það er svo offf að biðja fólk sem hefur tekið þessa “slagi” í gegnum tíðina að taka einhverja ákveðna slagi fyrir ykkur. Þetta er ekki subtweet heldur bara almennt PSA ekki leggja þetta á aðra, örugglega allt vel meint og eitthvað en bara nei
Ef að gæslustjóri Þjóðhátíðar sem sér um það að gæta að öryggi einstaklinga á þjóðhátíð er frekar tilbúinn að trúa meintum geranda en fjölda þolenda sem "gætu verið að ljúga" má hann frekar vera heima mín vegna 🤷
Að sprengja 50 skóla á Gaza er ekki til þess að þurrka út Hamas. Það er til að þurrka út framtíðina, þurrka út vonina. Það er þjóðarhreinsun í gangi og Ísland stendur tvístígandi í hringnum og vonar að einhver annar grípi inn í fyrst. Við erum aumingjar.
Afnám transskattsins er á dagskrá þingfundar á morgun! Auðvitað á að vera ókeypis að breyta skráningu á nafni og kyni, alveg eins og það er ókeypis að breyta skráningu lögheimilis eða trúfélagaskráningu í þjóðskrá!
Bara svo það sé á hreinu, við gerðum ekki nýju stjórnarskrána að pólitísku máli. Það að ákveðinn stjórnmálaflokkur ákvað að gera það sitt mál að stöðva hana gerði hana að pólitísku máli.
Síðan á föstudag hafa margir í samræðum, með orðasendingum eða bréfum höfðað til skyldu minnar og skorað á mig að skrifa svarbréf við grein unga hagfræðingsins. Ég ákvað að verða við því trausti sem mér hefur verið sýnt og sendi inn svarbréf í sama miðil.