@hoddi23 Þannig að ég get ekki alveg séð hvar þessi slæma auglýsing er fyrir Bestu deildina. Ef að KSI samþykkir þetta sem varavöll að þá hlýtur þú að þurfa spurja vina þína þar af hverju þeir samþykkja það. Eða ertu kannski hættur sem blaðamaður eða eru þetta of erfiðar spurningar?
@hoddi23 Þú ert svo mikill 🤡 það eru ekki allir með samherja pening til að splæsa í nýjan völl.
Það að mótið sé lengt inn í frost er bara galið. Allt annað er redding vegna þess, fótbolti er grasíþrótt ekki plastíþrótt.
Þetta var bara mjög skemmtilegur leikur á að horfa í gær.
Rúnar Már Sigurjónsson er genginn til liðs við ÍA 🤝
Þessi gríðarlega reynslumikli miðjumaður, fyrrum landsliðsmaður og atvinnumaður til fjölda ára hefur skrifað undir samning við Knattspyrnufélag ÍA til loka tímabilsins 2026 👌
Rúnar Már hefur leikið 32 A-landsleiki og skoraði í þeim 2 mörk. Hann spilaði sem atvinnumaður í Svíþjóð, Sviss, Rúmeníu og Kasakstan. Spilaði hann 271 leik og skoraði í þeim 60 mörk og gaf 42 stoðsendingar. Á þessum tíma vann Rúnar Már deildina í Rúmeníu tvisvar sinnum, deildina í Kasakstan einu sinni og varð meistari meistaranna bæði í Rúmeníu og Kasakstan. Hann spilaði í riðlakeppni Evrópudeildarinnar og Sambandsdeildarinnar og eru Evrópuleikirnir 29, 9 mörk og 5 stoðsendingar ⚽
Rúnar Már mun koma til með að styrkja lið ÍA verulega og er mikil tilhlökkun að fá að fylgjast með honum næstu ár 😊
#fótbolti #kfía
Hinir ósnertanlegu 💪
ÍA 1993 lenti í 1. sæti í kjöri Vísis á bestu fótboltaliðum Íslands síðustu fjörutíu ár (1984-2023).
ÍA varð Íslandsmeistari með gríðarlegum yfirburðum 1993 og vann bikarkeppnina að auki. Skagamenn jöfnuðu stigamet og fjölga þurfti leikjum um níu til að markamet þeirra yrði slegið. ÍA kórónaði svo frábært tímabil með glæstum sigri á Hollandsmeisturum Feyenoord þar sem Ólafur Þórðarson skoraði frægt skallamark.
https://t.co/yTuK2Ikaed