Átti miða á Ronju með litlu systur minni og pabba okkar í dag, bókaðir fyrir löngu og ég var jafnvel spenntari heldur en sú stutta. Heyrðu nei, ég er svo hundlasin að ég gat ekki farið með 😭😭😭
Er mjög góð í tungumálum og hreimum, tala sex mál og krafla í þremur til viðbótar, pikka upp hreimi og mállýskur á augabragði. Get talað ensku með suðurríkjahreim jafnt sem skoskum.
Hver ætli automatic enski hreimurinn minn sé? Írskur.
Hef ég komið til Írlands? Nei.
Skil ég? Nei.
Keypti ótrúlega fallegt garn með það í huga að prjóna peysu á litla frænku sem er væntanleg í vor, en er búin að vera svo slæm af verkjum og bólgum að ég er ekki einu sinni búin að fitja upp 🙃🙃
@straetobs hvað er í gangi?
Var mætt á stoppistöðina hjá Höfðatorgi 5min áður en 12 átti að stoppa þar, en aldrei birtist vagninn og var hvergi sjáanlegur á kortinu.
@maggiperan@maserinn @bjossiborko Okay hann er frekar meh.
Hefði þessvegna bara getað bætt smá heslihnetusýrópi út í dökkan lager og voila. Mjög mikið hnetueftirbragð, sérstaklega eftir ropa.
Hver er besti jóla í ár að ykkar mati?
@maggiperan@maserinn @bjossiborko Keypti nokkra jóla í gær, m.a. Rúdolf því mér fannst hann einmitt hljóma þvílíkt vel! Er ennþá forvitnari að bragða á honum núna ef eitthvað er.
Sé svo eftir að hafa ekki keypt rauðvín í gær, langar ekkert frekar en að prjóna og drekka rauðvínsglas við kertaljós og kósý tónlist á þessum fyrsta í aðventu