Kápufrumsýning! Útgáfuhóf laugardaginn næstkomandi, 25. maí, kl. 17:00 í Veröld - húsi Vigdísar. Þið eruð öll velkomin! Lítið endilega við og fagnið með mér. Fimm dagar í þetta. Lokabókin um Bergrúnu og Brá er að koma út.
Fólk í hverfinu vill fella háar, fallegar aspir sem ég stari oft á út um skrifstofugluggann. En nei: Há tré í borgarumhverfi? Aldeilis ekki, Sarúman verður að geta tanað á pallinum!
Ég á alltaf til súrar gúrkur í ísskápnum. Alltaf. Ef þið hugsið, hey, ég væri til í súra gúrku, kannski ekki heila krukku, bara eina eða kannski tvær -- þá er bara að banka upp á.
Ókei, þannig að þið eruð hérna öll ennþá! Þá ætla ég að gera þetta svona: tvíta á íslensku en bláskjáast á ensku (er eitthvað að rembast við að social mediast meira því stöff er komið út á ensku). Hérna ætla ég þá að taka aftur þátt í okkar lókal djókum og katastrófum.
Þetta gæti ekki verið betra. Útgáfusamningur undirritaður. Handan Hulunnar: Skuld, lokabókin í fantasíunni um mæðgurnar Bergrúnu og Brá, kemur út á prenti hjá Króníku og sem hljóðbók hjá Storytel. Áætlaður útgáfudagur í seinni hluta maí.
Bannhelgi var meðal vinsælustu bóka Storytel á síðasta ári og er því í forvali fyrir Storytel Awards -- Íslensku hljóðbókaverðlaunin. Kosning er opin öllum, bara fáeinir smellir. Með fyrirfram þökk! https://t.co/RW4eQ4eusp
Hef verið ósýnilegur á samfélagsmiðlum. Er svo fixeraður á lokabókina um Bergrúnu og Brá. Verð sýnilegri bráðum. Lofa. Titill á bókinni enn á reiki, en hef 99% ákveðið nýtt yfirheiti á fjórleiknum og öllu sem söguheiminum tengist: Handan Hulunnar. Nýjar kápur verða hannaðar!
This has been brewing for awhile and now the cat is out of the bag! My trilogy about the Norse gods who survived Ragnarök is being developed for a TV drama series by @Skybound and @SagafilmIceland. A dream come to true! Big, big cheers! https://t.co/pjgedUmECN
Loksins! Skrifaði rétt í þessu undir samning um útgáfu 4. og jafnframt lokabókar um Bergrúnu og Brá (Víghólar, Sólhvörf, Nornasveimur). Mæðgurnar hafa verið fastar í cliffhanger í fimm ár. Storytel gefur út í maí!
Mögulega ofgerði ég því að koma krökkunum á bragð súrra gúrkna. Byrjaði daginn á að þrífa ísskáp og gólf. Safi úr heilli krukku helltist niður sökum áfergju.
Bara ef Tolkien hefði skrifað í senunni í Rofadal þegar föruneytið varð til: Ernirnir myndu ekki standast krafta hringsins (sem var örugglega raunin, Tolkien þurfti að halda utan um milljón hluti) -- þá væri þetta engin spurning. Óspilltir hobbitar var lausnin.
@Stefan_Mani_ Ég fíla Gyrði í botn. Sá íslenski höfundur sem ég las hvað mest af sjálfsdáðum á menntaskólaárum, þegar maður var leitandi. Og les auðvitað enn.