@adhd4lyf Áhrifafólk hefur talað fyrir því að fordæma eigi ofbeldið sjálft og hvatt gerendur til þess að taka ábyrgð. Það hefur hins vegar verið talið skaðlegt að skrímslavæða gerendur því þeir eru fólk eins og þú og ég. Þannig er fordæming a fólki ekki ákjósanleg, heldur á gjörðum þeirra
Staðan á húsnæðismarkaði á rætur sínar að rekja til stjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar 2013 þegar búið var að rétta úr kútnum (hægt að skoða tölur yfir rekstur ríkissjóðs ár frá ári) og ríkið hefði þurft að byggja, byggja og byggja. Þetta var mitt álit 2013 og í dag.
Það er sérstakur staður í helvíti fyrir fólk sem stígur á yogahandklæði annarra í hóptímum í stað þessa að sveigja aðeins framhjá eða taka stærri skref yfir 🙄 stend og fell með þessari skoðun.
@andreahauks Vímuefnavandi og neysla fíkniefna afsakar auðvitað ekki brot á hegningarlögum og önnur afbrot en hluti af sökinni á heima hjá stjórnvöldum vegna stefnuleysis og skorts á úrræðum.
@andreahauks Eftir að lokað var á þá skömmtun sem Árni Tómas veitti sínum skjólstæðingum erum við að sjá hversu mikið úrræðaleysi er á Íslandi f. fólk með langvarandi & alvarlegan vímuefnavanda sem er ekki tilbúið að fara edrúleiðina. Úrræðaleysi endurspeglast t.d. í fjölgun rána og innbrota
Ætlaði aldeilis að gera vel við mig og kaupa smá lærdómsmunch en læsti mig úti frammi á gangi og kæró í vinnunni og það uppi í Reykjanesbæ. Það fyrsta sem ég hugsaði; „ónei nú get ég ekki lært!!!“ Siðlaust.
Getum við hætt að fela okkur á bak við ‘þetta er bara mín skoðun, þú mátt vera ósammál’ þegar skoðunin þín er a) vanvirðing og b) ýtir undir kúgun, kynbundið ofbeldi og ójafnrétti