Ég og systir mín vorum í útskriftarveislu og vorum að tala við einn gestinn. Þegar hann frétti það að við værum einhleypar- sagði hann: nú, þið eruð ekkert það ljótar. Veit ekki alveg hvernig maður á að taka þessu en jájá ekkert það
Kl: 7.40 í morgun fór ég með bílinn minn í dekkjaskipti. Klukkan 15 hringdu starfsmenn í mig og þá var eitt dekkið vitlaust. Flýtti mér af stað og HJÓLAÐI með dekkið til þeirra. Neinei- Það var líka vitlaust. Starfsm þurfti að skutla mér og hjólinu heim til að sækja rétt dekk:)