Dóttir mín tilkynnti mér hróðug þegar ég kom úr vinnunni að hún hefði sett í uppþvottavélina - í fyrsta sinn! Hrósaði henni auðvitað í hástert. Opnaði nokkru síðar vélina og er auðvitað enn hæstánægður með hana þó mögulega væri vert að fara yfir fáein blæbrigði í röðun …
@Runolfur21 Netop Runi - þetta er líka í sjálfu sér eins og Arsenal sl. ansi mörg ár: fagurfræði ofar skilvirkni. Svo sem fallegt ídeal ef því er að skipta
@ravenk72 Veit ekki hvort ég sé meira eftir, að missa af seinni hálfleik í nótt eftir að Óli lokbrá hafði betur eða að missa á sama tíma af beintístunum hjá Nátt-Hrafni um leikinn! Nota bene má taka undir það allt saman! En Denver bara of stór biti sýnist mér.
Sorgarfréttir. Virkilega mikilhæfur maður, aðsópsmikill og skarpur; stór hugur og stórt hjarta, hlýtt líka. Sannkallað stórmenni. Þakklátur fyrir að fá að hafa kynnst honum, lærði margt og ekki bara í söng. Samúðarkveðjur til fjölskyldunnar og ástvina.
https://t.co/xsASxpsKJK
Bikarúrslit HSÍ hefjast á morgun og þá falla allar æfingar í Laugardalshöllinni niður. 16 æfingahópum í körfubolta hjá Ármanni hent út. Yfir 200 börn.
Frá áramótum hafa 32 æfingadagar fallið niður í Laugardalshöll.
@Dagurb@framsokn@ruvithrottir@PiratarXP@visir_is@mblfrettir
@senordonpedro Vílaðirðu ekkert fyrir þér að fjárfesta í ökugarðsláttuvél sem hluta af búningnum? Og hvernig gekk að frílysta þig á henni í garðinum í febrúar?
Yfir 40% af æfingadögum falla niður í Laugardalshöll á þessum vetri vegna viðburða eða framkvæmda. Laugardalshöllin dugar bara fyrir hluta af æfingatímum Ármanns og margir deila salnum á hverri æfingu.
Einn leikur hefur farið fram í Höllinni á vegum Ármanns í vetur.