Sendiherra Úkraínu gagnvart Íslandi, @OlgaDibrova1, átti óformlegan fund með fulltrúum utanríkismálanefndar Alþingis í morgun. Til umræðu var hið alvarlega ástand sem skapast hefur í Úkraínu vegna innrásar Rússa.
#Ukraine#utanríkismálanefnd#Alþingi#Althingi
Næstu daga og vikur verða ráðherrar og þingmenn Framsóknar með opna fundi víðs vegar um landið. Þá gefst gott tækifæri til að ræða þau mál sem helst brenna á fólki.
Við hlökkum til að sjá ykkur. #kjördæmavika#framsókn
Að árið 2030 muni útgjöld ferðamanna hér á landi nema 700 milljörðum króna og að útflutningverðmæti menningar verði 20 milljarðar.
@liljaalfreds@framsokn
https://t.co/YPqzhBuWL9
#framsokn
Við eigum afmæli í dag!
,,Saga Framsóknar í 105 ár er samofin framfarasögu íslensku þjóðarinnar og hvernig íslenskt samfélag hefur komist í efstu sæti í flestu því sem þykir gott og mikilvægt í samfélögum heimsins"
https://t.co/8M7v188IC6
Ég þakka af auðmýkt fyrir það traust sem mér er sýnt og þeirri ábyrgð sem mér er falið í nýrri ríkisstjórn. Ég mun leggja mig allan fram við að rísa undir því trausti og er fullur tilhlökkunar að takast á við verkefnið.
W
Ísland vann setningarleikinn á heimsþingi kvenleiðtoga 1-0, sigurmarkið skoraði að sjálfsögðu Íþróttamálaráðherrann og Fram-sóknar leikmaðurinn @liljaalfreds eftir flotta samvinnu og samspil íslenska liðsins. Fékk svo mynd af mér með liðinu í leikslok
Framsókn vill efla efnahagslífið með því að stuðla að uppbyggingu í skapandi greinum. Fyrstu skrefin hafa verið stigin með hagvísum skapandi greina og sérstöku rannsóknarsetri. Næsta skref er sérstakt ráðuneyti skapandi greina.