ÁTVR lokar búðinni í miðbæ Akureyrar en opnar aðra á Norðurtorgi, sem er nyrst í Glerárþorpi. Norðurtorg er ekki í göngufæri við neitt. Ef að forvarnir eru í forgangi hjá ÁTVR að þá er þetta framúrskarandi árangur
Þetta tweet fer aðalega í taugarnar á mér vegna þess hvernig það er orðað. Almannafé nýtt í eitthvað á landsbyggðinni er alltaf “niðurgreiðsla” hjá hbs fyrir landsbyggðina. En alls ekki öfugt. Eins og það verði bara engin verðmæti og skatttekjur til út fyrir höfuðborgina
Er ég ein um að finnast óeðlilegt að höfuðborgarsvæðið niðurgreiði flug til Reykjavíkur um 700 mkr. frá 2020 í gengum Loftbrú? Væri ekki meira jafnrétti milli fólks ef Loftbrú væri í boði fyrir alla landsmenn? https://t.co/7AVSUccdyI
Akureyringum vantar einhvern alvöru úrbanista sem nennir að tína til alla vitleysuna sem er sífellt verið að gera í skipulagsmálum og svara fullum hálsi. Ærandi tækifæri hérna, en verður ekki upp á marga fiska ef fram heldur sem horfir
Þetta “Er þér sama um einstök líf” er rökþrota take, en það er bara svo auðvelt að ásaka fólk um að vilja ekki meira öryggi. Það er engin mannvonska falin í því að vilja eðlilegt líf og að það sé tekið tillit til fleiri þátta en bara beinna veikinda af Covid.