Í dag, laugardaginn 2. júlí, kl.17:00 opnar Anna Álfheiður Brynjólfsdóttir sýninguna Andrá línunnar / Breathing lines” í Gallery Port. Sýningin stendur til 16. júlí og er opið í Gallerý Port frá þriðjudögum til laugardags frá 12:00-17:00.
Takk allir sem mættu, buðu og listamennirnir sem gáfu verk í gær á uppboðið til styrktar Úkraínu. Við náðum að safna vel yfir milljón.
Næsta uppboð verður í @bioparadis næsta sunnudag. @Jon_Gnarr mun mæta og stýra því líka af sinni alkunnu snilld.
Unnar Ari Baldvinsson opnar sýninguna Sjáðu mig í dag, laugardaginn 5. feb, kl.17:00. Sýningin stendur til 17. febrúar og er Gallery Port opið frá þriðju- til laugardags frá 12:00 - 17:00.
https://t.co/EgduuMftqK
😊
Kæru landsmenn, Gallery Port er flutt á Laugaveg 32, aðeins ofar í götunni. Velkomin á Jólagesti okkar í nýju rými. Listaverk í tugavís, fermda barnið biður um listaverk úr Gallery Port í skóinn, afi vill prent í upplagi, viðráðanleg verð, góð kjör, opið til 22 til jóla.
Vildum bara benda ykkur á að @gallery_port var að taka leikinn upp á næsta stig á Laugaveginum.
Okkar bestu nágrannar komnir í alvöru rými. Virkilega gaman að sjá!
Þau Áslaug Íris og Steingrímur Gauti opna samsýninguna Innanyfir núna í dag kl. 17. Mjög flott samspil og eftirtektarverð sýning þykir okkur. Allir velkomnir.
Samsýningin 30x30 opnar í dag kl. 16. Fjölbreytt verk 30 listamanna, margar gerðir, svipaðar stærðir.
Sjaldséðir hvítir hanskar dregnir fram en ekki án tilefnis!
Þessa mynd af málverki á sýningunni Samskeyti, verkum Freyju Reynisdóttur og Jónínu Bjargar í Gallery Port, máttum við ekki birta fylgjendum okkar á feisíbúkkí. Og erum enn að klóra okkur í kollinum yfir því.
Opið í dag til kl. 18. Sýningunni lýkur svo n.k. fimmtudag.
„En vitaskuld færi best á því að hinn íslenski Sjálfstæðisflokkur mundi festa kaup á verkinu [...] Þeir mega setja myndina á kosningabæklinga sína og bleðla gjaldfrítt mín vegna.“
Nú er sólarhringur til stefnu - uppboðinu lýkur kl. 16 á laugardag. @thrandur_
Gasalega lekkert, sýning @thrandur_ í Gallery Port stendur fram á fimmtudaginn 15. júlí. Nú stendur yfir uppboð á málverkinu af Þorsteini og Bjarna en einnig er í boði veggspjald fyrir áhugasama. Opið til 18 í dag.
@thrandur_ Þórarinsson snýr aftur í Gallery Port, í fjórða sinn, og opnar sýninguna "Gasalega lekkert" á morgun kl. 16. Fjöldi málverka á veggjum, grímulaus áróður og grímulaust fjör til kl. 18.