Blackburn's Iceman Is On Fire! 🇮🇸🔥
The outrageous stats that prove Andri Guðjohnsen is the most clinical striker in Europe right now, and why Tony Mowbray is the man to take him to another level...
Fínn sigur hjá strákunum í kvöld á Snæfelli. Liðið hefur nú sigrað fyrstu fjóra leiki sína í deildinni og eru á toppi deildarinnar ásamt Haukum.
💚ÁFRAM BREIÐABLIK💚
#korfubolti#Blikar#Blix#KKÍ
Birnir Breki semur við Knattspyrnufélag ÍA
Knattspyrnufélag ÍA hefur samið við Birni Breka Burknason (f. 2006), sem gengur til liðs við félagið frá HK. Um er að ræða langtímasamning sem gildir til loka keppnistímabilsins 2029.
Birnir Breki er ungur og spennandi kantmaður sem hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir frammistöðu sína á undanförnum misserum og bætist nú í öflugan leikmannahóp ÍA.
Það er mikið gleðiefni fyrir félagið að Birnir Breki hafi ákveðið að stíga næstu skref í sínum ferli á Akranesi. Hann mun styrkja liðið í þeirri baráttu sem framundan er á þessu tímabili og passar frábærlega inn í langtímastefnu félagsins.
Knattspyrnufélag ÍA býður Birni Breka hjartanlega velkominn til félagsins.
Oliver Stefánsson til GKS Tychy
Knattspyrnufélagið ÍA hefur selt Oliver Stefánsson til pólska liðsins GKS Tychy sem leikur í næst efstu deild í Póllandi. Oliver er uppalinn Skagamaður og snéri aftur heim á Akranes fyrir síðasta tímabil og hefur staðið sig gríðarlega vel í gula búningnum.
Síðasti leikur Olivers í bili fyrir ÍA var 1-0 sigur á KR síðustu helgi – glæsilegur lokaleikur áður en hann heldur nú utan í nýtt ævintýri.
Við þökkum Oliver kærlega fyrir framlagið til uppeldisfélagsins og óskum honum alls hins besta í Póllandi 💛🖤
Knattspyrnufélag ÍA & Ómar Björn Stefánsson (2004) hafa skrifað undir samning til næstu þriggja ára. Ómar Björn er tvítugur framherji sem kemur til félagsins frá Fylki 🤝
Jón Þór Hauksson þjálfari:
„Ómar Björn er öflugur framherji á spennandi aldri. Hann er kröftugur, sterkur og tæknilega góður leikmaður og ég er sannfærður um að hans eiginleikar falli vel að leik Skagaliðsins. Við höfum lengi fylgst með Ómari og erum bæði stolt og ánægð með að á þessum tímapunkti hafi hann valið ÍA sem næsta skref á hans ferli. Ég hlakka mikið til að vinna með honum.“
Við bjóðum Ómar Björn hjartanlega velkominn á Skagann 💛
Myndir: Jón Gautur Hannesson
#fótbolti #kfía